Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2023, Blaðsíða 14
14
mikið vatn á borðinu að þeir myndu þá bara skvetta á mig,“
segir hún og skellihlær, enda aldrei langt í húmorinn.
Því næst segist Kolbrún hafa farið að hlaðborðinu og
undir hverju fati var eldur. „Þegar ég tók eftir því rétti ég
formanni verkalýðsfélags Bolungarvíkur diskinn minn og
lét hana bara sjá um þetta!“ Þótt frásögnin sé fyndin gefur
hún vissulega vísbendingu um þessa sjálfsögðu hluti sem
fólk þarf yfirleitt ekki að hugsa út í en súrefnisþegar verða
að varast. Hún segist núna vera búin að taka alla kveikjara
á heimilinu og setja þá á öruggan stað af því hún geti verið
svolítið fljótfær. „Núna er ég líka bara með rafmagnskerti.
Það er ýmislegt sem maður þarf að hugsa öðruvísi.“
Aðgát skal höfð
Kolbrún nefnir hve viðbrögð fólks geti verið misjöfn þegar
það mætir einstaklingum sem eru með súrefnistæki
meðferðis.„Það er svo mikilvægt að muna að aðgát skuli
höfð í nærveru sálar. Það er líka brýnt að stuðla að því að
súrefnisþegar finni sig frjálsa til að fara út úr húsi svo að
þeir einangrist ekki.“ Hún segir að sér finnist t.d. ekkert
erfitt þegar fólk spyr hana hvað hafi komið fyrir og af
hverju hún sé með þetta. Eins ef þetta gæti líka orðið
einhverjum víti til varnaðar að fara ekki að reykja, þó að
það sé ekki eina ástæðan fyrir því að fólk verði súrefnisháð.
„Mér finnst hins vegar að það vanti stundum smá tillitssemi
hjá fólki sem spyr þig,“ segir hún í lokin. „Kannski er það
bara hugsunarleysi þegar fólk kemur og segir: „Hva, ert þú
bara komin með kút?“ Það fer svolítið í taugarnar á mér. Ég
þoli það en held að mjög margir einangrist einmitt vegna
þess að það tekur svona spurningar nærri sér. Það er allt
annað ef fólk spyr: “Hvað kom fyrir þig? Ertu búin að vera
lasin?“ Þá ræður þú ferðinni hvernig þú bregst við þeim
spurningum. En svo má heldur ekki gleyma því góða sem
þessu fylgir,“ bætir hún við og nefnir hve hjálpsamt og gott
fólk geti verið, samanber nágranna hennar sem hún segir
að séu þeir bestu í heimi. „Alls konar fólk er boðið og búið
að aðstoða mig þegar það sér mig í aðstæðum sem ég ræð
kannski ekki vel við. Það getur líka verið gott að búa í litlu
samfélagi.“
Reykjavíkurmaraþon 2023
Lungnasamtökin vilja þakka þeim frábæru hlaupurum sem hlupu
fyrir Lungnasamtökin í Reykjavíkurmaraþoninu í ár.
Við þökkum einnig kærlega fyrir öll áheitin sem aldrei fyrr hafa verið glæsilegri.
Stuðningurinn skiptir okkur sannarlega miklu og færum við öllum
hlutaðeigandi okkar bestur þakkir fyrir ómetanlegan stuðning.