Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2023, Blaðsíða 25

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2023, Blaðsíða 25
25 þessu námi og fara heim. „En indverski læknirinn, vinur minn, stakk þá upp á því að sonurinn kæmi út og hann bauðst til að taka hann í meðferð.“ Það varð úr og sonurinn var hjá henni fram að jólum en þá fóru þau bæði heim. „Strákurinn bara læknaðist. Indverski læknirinn tók hann algerlega í gegn og þá fór ég að verða svolítið áhugasöm um þessi vísindi,“ segir Heiða Björk og bætir við að hún hafi líka aðeins verið búin að komast í kynni við ayurveda og þessa lífskrafta, vata, pitta og kapha, í gegnum yogakennara- og næringarþerapíunámið . „Ég var því smám saman að kynnast þessum fræðum úr ýmsum áttum. Öll vötn virtust renna til ayurveda,“ segir hún og hlær. Lungnasjúkdómurinn í grunninn vata-sjúkdómur Þegar Heiða Björk fór heim frá Toronto var bankahrunið hafið á Íslandi sem setti flest úr skorðum. Þetta reyndist henni mikill álagstími. Hún var orðin einstæð móðir, búin að taka að sér allt of mikla vinnu og var undir gríðarlegri pressu. „Ég er allt of áköf eins og vata týpurnar,“ segir hún og vitnar til fræðanna. „Þarna var ég að elda allt frá grunni fyrir soninn, hugsjónamanneskja í umhverfismálum, að gefa vinnuna mína í einhverjum umhverfissamtökum, alltaf í yfirvinnu sem framhaldsskólakennari, osfrv. Ég held að allt þetta stress og læti hafi ýtt mínum sjúkdómi af stað,“ segir hún og vísar til lungnasjúkdóms síns. „Samkvæmt ayurveda fræðunum þá er hann í grunninn vata sjúkdómur sem er einn af þessum þremur lífskröftum. Vata orkan veldur herpingi og stífleika í líkamanum og það er eðli þessa lungnaslagæðasjúkdóms þar sem lungnaslagæðin stífnar og herpist.“ Ekkert kom í ljós Upp úr árinu 2006 segist Heiða Björk hafa verið byrjuð að finna til mæði án þess að gera eitthvað í málunum. „Ég hugsaði bara að þar sem ég væri að verða fertugu þyrfti ég að fara að skokka meira og ákvað líka að kaupa mér svona snjallúr sem mælir púls og fleira og líka innitrampólín. Þetta var alveg skelfilegt fyrir minn sjúkdóm,“ segir hún og hlær. „Ég gat varla gert neitt verra.“ Svo leið tíminn og árið 2010 segist hún hafa fundið að þetta væri alls ekki eðlilegt. „Vinkona mín hafði fengið hjartaáfall um þetta leyti og ég ákvað því að fara í Hjartamiðstöðina og láta athuga mig. Þar var ég skoðuð og rannsökuð en ekkert kom í ljós. Bara einhver smáskrítinn taktur sem er mjög algengt og þarf ekki að vera neitt.“ Hún segist líka hafa farið á milli lungnalækna og enginn fundið út úr þessu. Átti að fara í uppskurð Eitthvað hafði að vísu sést í lungunum, þannig að hún var sendi í berkjurannsókn þar sem sýni yrði tekið. „Við það féll lungað saman en þar sem ég var með háþrýstinginn í lungunum þá þoldi það ekki svona meðferð. Samt áttuðu þau sig ekki á neinu og ég var lögð inn með dren úr lunga, þannig að það gekk á ýmsu.“ Í maí árið 2010 stóð til að senda Heiðu Björk í aðgerð til að taka lungnasýni og daginn áður fór hún í rannsóknir og viðtöl við lækna. Hún segir að á þessum tíma hafi verið búið að líða nokkrum sinnum yfir sig og blætt reglulega úr nefinu á sér og að kálfarnir hafi verið orðnir mjög sverir af bjúgi, ásamt fleiri sérkennilegum einkennum. Þessu sagði hún frá í viðtölunum en það virtist engu breyta þar sem henni var einfaldlega sagt að mæta klukkan sjö morguninn eftir í uppskurðinn. Læknaneminn bjargaði lífi hennar „Svo þegar ég er að ganga út af spítalanum þá er hringt og það er læknanemi, yndisleg stelpa sem ég man því miður ekki hvað heitir af því að hjartalæknirinn sagði að hún hefði bjargað lífi mínu!“ Læknaneminn spurði hvort Heiða Björk væri í húsinu og sagði henni að drífa sig til baka. Hún hafði farið yfir öll gögn sem hinir virðast ekki hafa skoðað og sá að hjartalínuritið var stórkostlega óeðlilegt. „Hún hafði því samband við hjartadeildina og ég var bara „sjanghæuð“ og lögð þar inn og fór aldrei í uppskurð. Hjartað á mér var orðið allt of stórt. Búið að erfiða svo mikið við að pumpa blóði til lungnanna í gegnum allt of stífa lungnaslagæðina. Hjartalæknirinn, sem ég hafði farið til í Hjartamiðstöðinni, sagði að sér þætti leiðinlegt að hafa ekki séð þetta þar sem það hafi ekki sést í rannsóknunum. Annar hjartalæknir kom að máli við mig og var gífurlega stoltur af læknanemanum sínum og sagð að ég hefði ekki þolað að fara í svæfingu og uppskurð.“ Skýringin fannst loks Á hjartadeildinni kom þessi háþrýstingur í ljós við ómskoðun og þá fannst loksins skýringin á mæðinni og því sem hafði sést í lungunum. „Þetta var árið 2012 en þá var ég búin að vera eitthvað skrítin í mörg ár og versnaði stöðugt. Ég var sett á lyf sem virkuðu ekki nógu vel og menn voru að þreifa sig áfram. Eftir um hálft ár fundu þeir réttu blönduna fyrir mig þannig að það gekk í rauninni mjög vel alveg til ársins 2019. Þá kom upp mikið álag í lífi mínu á mörgum vígstöðvum, tilfinningalegt álag, kvíði, óvissa og tilheyrandi svefnleysi. Akkúrat þetta tvennt, kvíði og óvissa, ef við tölum ayurveda tungumál, espar þennan lífskraft sem heitir vata og veldur samdrætti, herpingi og þurrki í líkamanum og þá versnaði sjúkdómurinn minn.“ Bakslag Háþrýstingurinn í lungunum rauk svo upp en hann hafði verið í þokkalegu lagi eftir að Heiða Björk hóf lyfjameðferð. „Þá var brugðist við með því að gefa mér þriðja lyfið. Ég var búin að vera að taka inn tvö og þetta þriðja lyf var miklu öflugra en hin. Það þurfti að ráðast á þennan háþrýsting Í fjallgöngu

x

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga
https://timarit.is/publication/1564

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.