Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2023, Blaðsíða 26

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2023, Blaðsíða 26
26 því að annars hefði hjartað stækkað svo mikið að ég hefði bara dáið úr hjartabilun.“ Þessu lyfi fylgdu mjög miklar aukaverkanir og hún náði aldrei að taka fullan skammt. „Vinkona mín sem er með sama sjúkdóm tekur þetta lyf án nokkurra vandræða en við erum bara öll svo ólík. Minn líkami þoldi ekki þetta og ég náði aldrei upp í hámark og þurfti að stoppa þar sem þetta var þolanlegt.“ Það fyldgu alltaf þessir verkir sem fóru að taka frá henni svefn. „Ég sá fram á að ég yrði ópíóðasjúklingur þar sem ég þurfti stundum tvær parkódín forte til þess að geta sofnað. Þótt ég sofnaði vaknaði ég upp við verkina í öllum liðum og höfðinu og var með niðurgang. Það er síðan ávísun á framtíðarsjúkdóma um leið og þú hættir að taka upp næringarefni út af niðurgangi. Ég sá því að þetta gengi ekki, ég þyrfti bara að hætta á þessum lyfjum en það mátti ég ekki gera því að þá hefði háþrýstingurinn bara rokið upp Fór í sérhæfða ayurveda meðferð Heiða Björk tók þá til þess ráðs að fara í sérhæfða ayurveda meðferð, svokallaða panchakarma meðferð. Pancha þýðir fimm og karma þýðir aðgerðir. „Þetta eru aðgerðir til þess að losa of mikið af vata, pitta og kapha út úr líkamanum, þessar þrjár lífsorkutegundir. Þær miða að því að hreinsa þetta út því að það þarf að losa út svona eiturefni og úrgangsefni sem eru farin að trufla líkamsstarfsemina og styrkja vefina í kjölfarið. Ég var í þessari meðferð í tvær vikur á Spáni og allir verkir fóru og meltingin komst í lag sem var hreint dásamlegt,“ segir hún og brosir. Eins og að taka inn blásýru „Ég var samt áfram á þessu lyfi og endrum og sinnum komu verkirnir aftur ef ég hafði verið að drekka of mikið kaffi, eða gera eitthvað vata-aukandi. Mér fannst náttúrulega æskilegast að geta bara hætt að taka þetta inn en læknirinn minn var búinn að segja að því fleiri lyf sem sett væru þá væri aldrei hægt að fara til baka og sleppa þeim. Háþrýstingurinn minn myndi bara aukast og versna með árunum og síðasta hálmstráið væri þá lungnaskipti. Hún sagði að við ættum samt tvö lyf uppi í erminni áður en að því kæmi. Mér fannst þetta alveg skelfilegt og fannst eins og ég væri bara að taka inn blásýru, eða eitthvað ámóta, út af þessum hræðilegu aukaáhrifum. Þetta er svo óþægilegt!“ Aftur í panchakarma meðferð Aftur var förinni haldið í panchakarma meðferð og í þetta skipti til Indlands. „Það er ár síðan ég fór og þá var ég í fimm vikur. Á þessum vikum var ég smám saman tröppuð niður undir handleiðslu ayurveda-læknis og ég er ekki ennþá byrjuð að taka þetta lyf aftur. Þegar ég kom heim fór ég í reglulegt eftirlit tveim mánuðum seinna og sagði lækninum mínum frá þessu og hún var náttúrulega ekki sérlega sátt. Hún virðir þó alltaf allar mínar kenjar í meðferðinni og ég er mjög ánægð með okkar samvinnu. Ég var send í alls kyns mælingar en allt reyndist í fínu lagi. Háþrýstingurinn var eins og þegar ég tók þetta sterka lyf inn. Panchakarma meðferðin úti ásamt jurtalyfjunum sem ég tek inn komu í staðinn.“ Verð að passa lífstílinn Heiða Björk tekur það skýrt fram að hún sé auðvitað ekki laus við sjúkóminn. „Ég er ennþá með þennan háþrýsting í lungunum en ég gat hætt að taka þetta þriðja lyf og ég er bara þakklát fyrir það. Verkirnir koma alltaf endrum og sinnum. En svo finn ég að ef ég passa ekki lífstílinn og mataræðið verð ég móðari. Lungnaháþrýstingnum fylgir svona kviðbjúgur þannig að kviðurinn þenst út. Við því þarf fólk að taka ákveðið lyf en eftir panchakarma meðferðina hætti ég líka alveg að þurfa að taka þessar bjúgtöflur inn. Ég geri það bara við sérstakar aðstæður t.d. í tengslum við flug. Ef ég passa ekki lífstílinn, vaki frameftir, missi mig í kaffinu, gleymi að taka jurtalyfin og drekka heimalagaða meltingar- efnaskiptateið mitt og geri ekki öndunaræfingarnar mínar, yogateygjurnar og opna orkuflæðið, þá byrjar bjúgurinn að aukast og þá verð ég móðari. Vestræn og austræn lífsvísindi – helsti munurinn „Vestræn læknavísindi, alveg eins og austræn, eru ekkert búin að komast að öllu og skilja alla líkamsstarfsemina hjá mannskepnunni,“ segir Heiða Björk þegar hún er spurð um muninn á þessum ólíku aðferðum. „Þetta er svo flókið og alltaf verið að uppgötva eitthvað nýtt í líkamsstarfseminni okkar. Að mínu mati taka vestræn læknavísindi ekki nógu mikið tillit til umhverfisins, mataræðisins og lífstílsins og hvað þeir þættir gegna mikilvægu hlutverki. Allir fá sömu ráðleggingar og lyf við sama sjúkdómnum. Sama máli gegnir með næringuna. Í ayurveda fræðunum er aftur á móti mismunandi greining á áhrifum matvæla á líkamann eftir því hver líkamsgerðin er. Þess vegna þola sumir mjólk og aðrar fæðutegurnid betur en aðrir. Þetta snýst ekki bara um að meltingin sé góð og allt það. Þegar fólk er að taka inn einhver sterk lyf þá skiptir líka máli hvernig best er að bregðast við til að lágmarka álagið sem það hefur á nýrun og lifrina að hreinsa þau út. Vestræn læknavísindi leggja engar línur um hvað hægt sé að gera til þess að styrkja nýrun og lifrina svo að hægt sé að taka þessi lyf og styrkja líkamann almennt til að höndla sjúkdómana betur. Við vitum ósköp lítið um hvað líkaminn þolir þetta lengi. Við erum bara einhver tilraunadýr.“ Dísel eða bensín? Heiða Björk segir að ayurveda sé aftur á móti með 5000 ára reynsluvísindi að baki í því hvernig eigi að para saman jurtir, æfingar, mataræði og lífstíl í lækningaskyni. „Meðan Matreiðslutími

x

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga
https://timarit.is/publication/1564

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.