Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2023, Blaðsíða 5
5
Maður þarf á öllu sínu að halda
og sérstaklega húmornum!
Eyrún Guðnadóttir er eiginkona Eiríks
Höskuldssonar sem gekkst nýverið undir lungna-
ígræðslu í Svíþjóð. Okkur lék forvitni á að heyra
hennar sögu en hlutverk aðstandenda, sem er
bæði mikilvægt og krefjandi, á það til að verða
hálf ósýnilegt í allri spennunni og óvissunni sem
fylgir alvarlegum veikindum.
Eiríkur fór í aðgerðina í september síðastliðnum og gekk
hún vel. Þau hjónin koma vikulega frá Grundarfirði til
Reykjavíkur þar sem hann fer í eftirlit á Lungnadeild
Landspítalans. Eyrún brást ljúflega við beiðni okkar
um viðtal og í einni slíkri eftirlitsferð núna í októberlok
kom hún í heimsókn á skrifstofu Lungnasamtakanna í
Borgartúni.
Engir dagar eins
„Ég er frá Grundarfirði og fædd árið 1968. Við Eiríkur erum
búin að búa saman í tuttugu og þrjú ár og erum svona
teygjufjölskylda,“ segir þessi flotta kona með brosglampa
í augum þegar við byrjum á hefðbundnum spurningum
um fjölskylduhagi og annað því tengt. „Eiríkur á þrjú
börn og ég tvö en við eigum ekki börn saman. Ég er
aðstoðarvarðstjóri í fangelsinu á Kvíabryggju og er búin að
vera í þessum geira frá því árið 2012.“ Spurð hvort starfið sé
ekki krefjandi svarar hún snaggaralega: „Það er alla vega
þannig að engir dagar eru eins.“
Þar er gott net
Eiríkur var búinn að vinna sem trésmiður í fjöldamörg
ár þegar hann fékk staðfestingu á því árið 2012 að hann
væri með lungnateppu og lungnaþembu. Á þeim tíma
bjuggu þau í Mosfellsbænum. Hann hélt áfram að vinna
til ársins 2015 en varð þá að hætta út af sjúkdómnum.
Þau ákváðu því að kúvenda lífinu, seldu húsnæði sitt í
Mosfellsbænum og fluttust vestur á Grundarfjörð. “Ég fékk
stöðu á Kvíabryggju sem reyndist mjög vel því að það er
ómetanlegt að geta verið nálægt fjölskyldu sinni og hafa
stuðning frá henni við þessar aðstæður.“ Öll fjölskylda
Eyrúnar býr á Grundarfirði, foreldrar hennar, tvær systur og
einn bróðir. „Þar er gott net,“ segir hún og brosir breitt. „Við
systurnar stöndum mjög þétt saman. Manni veitir ekki af.
Þær eru ótrúlegar.“
Þá kom COVID
Ljóst er að þeim hjónum hefur ekki veitt af slíkum
stuðningi. Eiríkur var orðinn óvinnufær með tilheyrandi
almennu þrekleysi og vanmætti. „Þegar fólk hættir að
vinna verður andlega heilsan ekki alveg upp á tíu. Það
hafði áhrif líka,“ segir Eyrún af yfirvegun. „Hann fór svo að
nota súrefni árið 2016 og ári seinna var hann kominn með
heimasúrefni.“ Eftir það segir Eyrún að leiðin hafi smám
saman legið niður á við en að árið 2019 hafi hann svo
komist á lista yfir lungnaþega. „Við fengum viðtal við teymi
í Svíþjóð þá um haustið og til stóð að hefja rannsóknarferli
fyrir lungnaskipti. Þá kom COVID. Heppin við!“ Svo mörg
voru þau orð.
Var búin að taka upp úr töskunum
Eyrún segir að engu að síður hafi siglingabréfið komið frá
Sjúkratryggingum 23. ágúst árið 2020, þ.e. samþykkt um
að komast í lungnaskiptaaðgerð. „Hins vegar stóð COVID
faraldurinn ennþá yfir, þannig að Eiríkur komst ekki á
listann fyrr en 12. október árið 2021. Við vorum því búin
að bíða og bíða og bíða,“ segir hún og brosir út í annað.
„Taskan var búin að bíða á stigapallinum í eitt og hálft ár.
Dóttir mín var búin að komast að því að meðalbiðtíminn
væri sex mánuðir. Við vorum búin að grufla svolítið og
leita að upplýsingum. Ég fylgdist alltaf með upplýsingum
á Scandiatransplant, sem er líffæraígræðslustofnun fyrir
Norðurlandaþjóðirnar og Eistland, um það sem væri að
gerast í þeim málum. Ég var búin að taka upp úr töskunni
og henda tékklistanum. Þannig að það var ekkert tilbúið
þegar við loksins fórum.“