Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Page 4
4 | | 21. desember 2023
Jólatónleikar sem varpa ljósi
út í myrkrið á aðventu
Jólatónleikar Kórs Landakirkju
eru eitt af ljósum aðventunnar
í Vestmannaeyjum. Kveikja
jólastemningu eins og best hún
getur orðið. Efnisskráin þekkt
jólalög og minna þekkt, erlend
og innlend og flutningur sem
hrærir hjörtun. Dásamleg hvíld frá
glamri útvarpsstöðva þar sem allt
rennur saman í einn gjallanda.
Þannig var tilfinningin þegar
Kórinn hóf upp raust sína undir
öruggri stjórn
Kittyar Kovacs stjórnanda og
undirleikara. Tónleikarnir voru
á miðvikudagskvöldið í síðustu
viku og fylltu gestir hvert sæti
í Safnaðarheimilinu þar sem
fyrri hlutinn fór fram. Tónninn
var sleginn strax í fyrsta laginu,
Have Yourself a Merry Little
Christmas sem allir þekkja. Þá
komu minna þekkt lög en höfðu
það sér til ágætis að höfundar laga
og útsetjarar, breskir reyndar eru
sérstakir Eyjavinir. Það fullyrti
bráskemmtilegur kynnir, Ragnar
Óskarsson sem fór á kostum.
Kitty sýndi hvers hún er megnug
sem einleikari þegar húr rúllaði
upp einum af píanókonsertum
Rachmaninoffs af mikilli snilld.
Frábær listamaður sem lyftir tón-
listarlífi Vestmannaeyja á hærra
stig.
Seinni hluti tónleikanna í kirkj-
unni er alltaf mjög hátíðlegur og
nær hámarki í lokin þegar Heims
um ból er sungið við kertaljós.
Dásamlegur endir og viðbrögð
gesta sýndu að þeir kunnu vel að
meta það sem fram var borið. Það
voru laun listafólksins fyrir þá
miklu vinnu sem liggur að baki
tónleikunum.
Lionsklúbbur Vestmannaeyja í
samstarfi við HS Veitur hefur
valið jólahúsið 2023. Þetta er
tuttugusta og fjórða árið sem
jólahúsið er valið. Í ár voru á
þriðja tug húseigna tilnefndar og
fyrir valinu varð hús Ágústs V.
Steinssonar og Örnu Ágústsdóttur
að Búhamri 12.
Bjarni Guðjón Samúelsson
frá Lionsklúbb Vestmannaeyja
afhenti hjónunum veglega
jólaskreytingu frá klúbbfélögum
og óskaði þeim til hamingju með
tilnefninguna. Sigmar Georgs-
son afhenti þeim áritaðan skjöld
og inneignarbréf upp í komandi
orkureikning frá HS veitum.
Lionsklúbburinn og HS veitur
óska bæjarbúum Gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Myndir Óskar Pétur.
Ágúst og Arna eiga
jólahúsið í ár
Kór Landakirkju, myndin er tekin að loknum jólatónleikum 13. desember sl.