Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Síða 22
22 | | 21. desember 2023
„Hugur minn dvelur hjá
þér-Heimaey 1973 var heitið á
sýningunni sem ég var beðin um
að vera með á Menningarnótt í
sumar í Grafíksalnum í Hafnar-
húsinu í Reykjavík. Þar sýndi
ég verk sem tengjast eldgosinu á
Heimaey og þeim áhrifum sem
gosið hafði á samfélagið með
tilliti til náttúrunnar og mann-
félagsins. Á sýningunni var ég
með grafíkverk og innsetningar í
bland við ýmiskonar aðferðir og
náttúrustemmingar sem ég hef
verið að nota í listsköpun minni til
þessa dags,“ segir Gíslína Dögg
Bjarkadóttir myndlistarkona.
Sýning hennar vakti mikla athygli
enda nálgun hennar sérstök þar
sem hver innsetning segir meira
en 1000 orð.
„Að hluta til undirbjó ég þessa
sýningu í Noregi, þar sem ég var í
listamannadvöl í mánuð í upphafi
sumars. Ég tilheyri listahópnum
Ecophilosophicdialogues, sem
samanstendur af sex listakonum,
þremur norskum og þremur frá
Íslandi. Afrakstur af vinnunni í
Noregi mátti einnig sjá á Slippn-
um um goslok og hluti af þeirri
sýningu var einnig á þessari
sýningu á Menningarnótt. En við
bættust við fjórar seríur sem sam-
anstóðu af nokkrum myndum sem
unnar voru í grafík og ljósmyndir.
En lykilverkin voru fjórar innsetn-
ingar, þar sem ég reyndi að fanga
andrúmsloftið í og eftir gosið,“
segir Gíslína og það tókst.
Ótrúlegar sögur
„Það má segja að ég hafi verið
nokkurs konar áhorfandi eða öllu
heldur hlustandi á minni eigin
sýningu sem ég hef ekki áður
upplifað. Það var svo magnað
að hlusta á fólkið sem kom á
sýninguna sem hafði svo ótrúlegar
sögur að segja, sögur sem ég hafði
aldrei heyrt áður. Það var mjög
vel mætt á sýninguna þessa helgi
og gaman að sjá hvað margir
Vestmannaeyingar komu, bæði
brottfluttir og þeir sem búa í
Eyjum. Ég fann það að fólk vildi
segja mér frá sinni upplifun og
reynslu frá þessum tíma. Tvær af
innsetningunum og ein sería af
grafíkverkum voru svo sett upp
í Eldheimum fyrir Safnahelgina
hér í Eyjum í byrjun nóvember og
hafa síðan verið áfram í Eldheim-
um.“
Og Gíslína situr ekki auðum
höndum. „Framundan hjá mér
er afhending á 70 myndum til
Grafíkvina, en ég var valin graf-
íklistamaður hjá Íslenskri grafík
árið 2024. Svo mun ég fylgja eftir
sýningunni Solander 250 - bréf
frá Íslandi, en þá sýningu keypti
listasafnið Piteå í október. Sú
sýning mun opna í júní á næsta ári
og ferðast eitthvað um Svíþjóð.
Við sem erum í Ecophilosophicdi-
alogues höldum áfram okkar
samstarfi og við munum vinna
saman í Svíþjóð næsta haust og
við munum svo sýna saman á
Íslandi á nokkrum stöðum á nýju
ári,“ segir Gíslína sem komin í í
fremstu röð listamanna á Íslandi.
Gíslína við nokkur
verk sinna á sýningu
í Eldheimum
Á veggjum eru grafíkverk Gíslínu Daggar. Hjólbörur Af um 1.350 húsum sem voru í Eyjum fyrir gos fóru 417 undir
hraun. Matskeiðar eru til á hverju heimili. Skeiðarnar eru táknrænar fyrir mokstur og uppbyggingu eftir gos þegar
Eyjamenn mokuðu Heimaey upp að gosi loknu, ekki ósvipað og fornleifafræðingar. Kleinur - 850 börn frá
Vestmannaeyjum á aldrinum 8 – 15 ára fóru til Noregs sumarið 1973 í boði Rauða krossins. Mörg þeirra sem fóru til
Noregs minnast þessa tíma með hlýju og gleði, en önnur muna eftir heimþrá, ótta og óvissu. Fátt er íslenskara en
kleinur, þær eru líka þekktar í Noregi, en þá frekar til hátíðarbrigða í kringum jól.
„24. janúar 1973“ Kaffiboð sem bíður.
Gíslína Dögg grafíklistamaður hjá Íslenskri grafík árið 2024:
Þegar verk segja meira en 1000 orð