Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Síða 24
24 | | 21. desember 2023
„Þetta er söguleg stund. Ísfélag,
elsta starfandi hlutafélag landsins,
sem stofnað var þann 1. desember
1901, leggur nú síungt upp í nýtt
ferðlag,“ sagði Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson, stjórnarformaður
Ísfélags í ávarpi sínu. „Bjöllunni
hefur verið hringt og viðskipti
eru hafin með hlutabréf Ísfélags í
Nasdaq kauphöllinni.”
Gunnlaugur Sævar sagði það
hafa verið mikil tímamót í sögu
Ísfélagsins fyrir rúmum 30 árum
þegar Sigurður Einarsson út-
gerðarmaður tók forystu í félaginu
eftir að hafa sameinast því með
því að leggja fjölskyldufyrirtækið
Hraðfrystistöð Vestmannaeyja við
Ísfélagið. „Sigurður lést langt um
aldur fram en hafði lagt afdrifarík-
ar línur um framtíð félagsins og
hvernig rekstri þess skyldi háttað.
Minning hans mun lengi lifa.
Fjölskyldan hefur síðan farsæl-
lega leitt félagið sem orðið er eitt
glæsilegasta og öflugasta félag
landsins. Hin frábæra niðurstaða
hlutafjárútboðs Ísfélags bar mörgu
vitni. Hún sýnir auðvitað og vottar
glæsileika félagsins og trú fjár-
festa á framtíðinni. Hún staðfestir
trú fjárfesta á kjölfestufjárfestum
félagsins, stjórnendum þess og
starfsmönnum.“
Styrkar stoðir
Gunnlaugur Sævar sagði fram-
leiðslutæki Ísfélags í skipum,
fiskvinnslum og verksmiðjum að
stærstum hluta til tiltölulega ný-
leg, af bestu gerð og af heppilegri
stærð og staðsetningar einstakar.
„Þeir sem farið hafa með stjórn
félagsins og eigendur þess hafa
yfirburðaþekkingu á rekstri
sjávarútvegsfyrirtækja. Þeir eru
reynslumiklir og vel þekktir fyrir
heiðarleika og vel unnin störf. Þar
er valinn maður í hverju rúmi.
Skýrt dæmi og nýlegt um hæfi
eigenda Ísfélags og stjórnenda
þess er nokkurra mánaða gamall
samruni Ramma og Ísfélags
Vestmannaeyja. Það voru ekki
margir sem höfðu trú á að það
tækist að koma félaginu á markað
á þessu ári. En félögin smullu
saman á augabragði. Ekki hefur
eitt einasta smámál komið upp
sem ágreiningur hefur verið um.
Engar vöbblur á mönnum. Verkin
eru unnin fumlaust og af öryggi,“
sagði Gunnlaugur Sævar sem næst
kom að skráningu félagsins.
Orðið almannaeign
„Í einni svipan eru hlutahafar Ísfé-
lags orðnir hátt í sjö þúsund auk
tugþúsunda félaga lífeyrissjóða
sem eiga drjúgan hlut í félaginu.
Þrjú umsvifamikil sjávarútvegs-
fyrirtæki eru nú í Kauphöllinni.
Með þessari þróun má segja að
sjávarútvegurinn sé orðinn al-
mannaeign þó fyrirtækin séu leidd
af öflugum aðilum með bestu fá-
anlegu þekkingu og reynslu á slík-
um rekstri hér á landi. Þetta sýnir
einnig að þrátt fyrir andróður og
á stundum óvægna og rangláta
umfjöllun eru Íslendingar stoltir
af sínum sjávarútvegi og fullir
tiltrúar á framtíð hans. Þeir vilja
gjarnan vera þátttakendur.“
Gunnlaugur sagði að fyrir hann
persónulega væri þetta stór stund
eftir 33 ár í stjórn Ísfélags og sem
stjórnarformaður í 23 ár. Hann
var ennfremur um árabil í stjórn,
og um tíma, stjórnarformaður
Ramma. „Félögin eru mér því afar
kær og allir aðstandendur þeirra
einnig en ég hef átt vináttu þessa
fólks í áratugi.
Traustir og trúverðugir
„Ekki verður við málið skilið án
þess að þakka þeim sem að því
komu, starfsmönnum og sér-
fræðingum.“ Gunnlaugur Sævar
sagði að fjárfestar sem sóttu kynn-
ingarfundi í aðdraganda útboðs
hefðu haft orð á því hversu traust-
ir og trúverðugir í allri framgöngu
þeir voru, Stefán Friðriksson og
Unnar Már.
„Leyfi ég mér fyrir hönd stjórnar
að færa þeim sérstakar þakkir
fyrir þeirra dýrmæta framlag
svo og öðrum starfsmönnum
sem að komu. Ekki síst ber að
þakka framgöngu bankamanna.
Í forystu fór teymi Arion banka
en ennfremur komu Íslandsbanki
og Landsbankinn að málum. Allt
einstakt fagfólk.
Mér þótti vænt um orð Hreiðars
Más forstöðumanns fyrirtækja-
ráðgjafar Arion banka í ávarpi
hans við lok útboðsins. En hann
fór fyrir bankamönnum í ferlinu.
Hann sagði að þeir væru vitaskuld
stoltir yfir því að hafa verið
valdir til verksins og ábyrgðar-
tilfinningin hafi verið mikil. - Við
lögðum allt okkar í verkið. Við
gátum ekki annað. Við vorum
valin af þessu góða fólki sem fól
okkur umsjón ævistarfs síns,“
sagði Hreiðar Már. Því mikla
trausti stóðuð þið undir Hreiðar
Már og félagar. Til hamingju með
stórkostlegan dag allir viðstaddir.“
Ísfélag verður til
Á hluthafafundi Ísfélags
Vestmannaeyja hf. 15. júní sl.
samþykktu hluthafar að sam-
einast Ramma hf. Ísfélagið
er yfirtökufélagið og munu
hluthafar Ramma fá hlutabréf
í Ísfélaginu. Félagið mun bera
nafnið Ísfélag hf. enda er nú
starfsemi félagsins á fjórum
stöðum um landið; í Eyjum,
á Þórshöfn, á Siglufirði og
í Þorlákshöfn. Um fjörutíu
manns, hluthafar og starfs-
menn, sóttu fundinn.
Í heildina starfa nú rúmlega
400 starfsmenn hjá sameinuðu
félagi, við útgerðina bætast
fjögur skip, ásamt rækju-
vinnslu á Siglufirði og fisk-
vinnslu í Þorlákshöfn. Bæði
félögin hafa verið öflug og
sterk á sínu sviði, annarsvegar
í uppsjávarveiðum og hins
vegar í bolfiskveiðum og
gefur þetta aukin tækifæri
til vaxtar og rennir styrkari
stoðum undir rekstur beggja
félaga.
Traust á eigendum,
stjórnendum og starfsfólki
Guðbjörg fékk aðstoð barnabarna
þegar hún hringdi Ísfélagið inn í
Kauphöll.
Magnús Harðarson, Ólafur Marteinsson, Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélags, Guðbjörg Matthíasdóttir,
og Gunnlaugur Sævar við bjölluna góðu.
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrett ir. is