Úrval - 01.03.1967, Side 52
50
ÚRVAL
markverð skil í sögunni, þar sem
þrákelkni Akkillesar verður til
þess, að kærasti vinur hans fellur
og síðan er mikilvægastur tuttug-
asti og annar þátturinn, þar sem
segir frá falli Hektors og svívirð-
ingu.
Lesandinn hlýtur að veita því at-
hygli, að persónur kviðunnar eru
raunsannar og ekki væminn tilbún-
ingur og þær lifa sjálfar sig og eru
þannig meiri af sér en sjálft lífið.
Það er ekki brugðið rómantískum
ljóma yfir hvorki Hektor né Akkil-
les eða Helenu, sem varð síðar kyn-
tákn bókmenntanna. Hún er ekki
gædd nokkrurn kynþokka í kviðu
Hómers. A þennan hátt upphefur
hann afkomendur . sögupersóna
sinna, hinna jónisku Grikkja. Hann
dregur þó upp myndir af söguhetj-
um sínum sem sýnir þær í mann-
legu Ijósi og mannlegum veikleika
á stundu dauðans.
Það er hin einfalda og samfellda
saga, hraðinn og' mikilfengleiki
sviðsins alls, sem er aðaleinkenni
Ilionskviðu og gerir hana að ein-
um af dýrustu fjársjóðum heims-
bókmenntanna.
Einu sinni var frægur fiðiusnillingur, sem áleit, að tónlist hans gæti
jafnvel töfrað hin villtustu dýr, því fór hann með fiðluna sína inn í
frumskóginn og byrjaði að leika.
Risavaxinn fíll kom æðandi að honum, en snarstanzaði, þegar hinir
undurþýðu tónar bárust að eyrum hans. Hann var bergnuminn af
hinni yndislegu tónlist. Pardusdýr steypti sér niður úr tré með glennt-
an kjaft og allar klær úti, en töfrar tónlistarinnar höfðu einnig sömu
áhrif á það. Og brátt var kominn þarna hópur grimmra villidýra, sem
hlustuðu frá sér numinn á fiðlutónana.
Svo kom hlébarði á vettvang. Hann hentist á stökki inn í hópinn,
réðist á manninn og át hann. Þegar hann var að sleikja klærnar á eft-
ir, hrópuðu hin dýrin til hans: „Hví gerðir þú þetta? Hann lék svo un -
aðslega.!!
Hlébarðinn bar heyrnartækin upp að eyranu og spurði: „Ha, hvað
sögðuð þið ?“
Rakarasveinninn var að ljúka við að sápa viðskiptavininn og sagði við
hann: „Nei, herra, húsbóndi okkar leyfir ekki neitt hirðuleysi. 1 hvert
skipti sem. við skerum einhvern viðskiptavininn, fáum við tveggja
shillinga sekt.“
„En“, bætti hann við og veifaði beittum rakhnífnum. „1 dag er mér
alveg sama um allar fjárans sektir. Ég veðjaði á góðan jálk á veð-
reiðunum í dag og vann 25 pund.“