Úrval - 01.03.1967, Page 100

Úrval - 01.03.1967, Page 100
98 ÚRVAL fram á milli snæviþakinna hæða, en þyx'ilvængjur i myndatökuerindum sveima yfir, hátalarar gjalla, tækni- menn frá útvarpi og sjónvarpi reyna að forða tækjum sínum og sendi- þráðum undan átroðningi. Keppn- in er að hefjast. í fyrra hófu 6857 manns gönguna, þeirra á meðal menn frá 12 lönd- um öðrum en Svíþjóð. En Vasa- gangan er enginn barnaleikur. held- ur þrekraun, því að þetta er 87 km. leið, þar sem keppendurnir verða að keifa upp og ofan brekkur, yfir víðáttumiklar flatneskjur, sneiða fyrir vötn og víkur og arka um skóga, allt frá sveitaþorpinu Sálen til hinnar. fornþekktu borgar Mora, sem er á bökkum vatnsins Siljan. Sigurvegari varð Janne Stefansson, fremsti víðavangsskíðamaður Sví- þjóðar, 31 árs að aldri og er þetta í fimmta sinn í röð sem hann vinnur. Tíminn var 5 klst. 52 mín. og 38 sek. En fyrir flestum þeim, sem hefja Vasagönguna er sigurinn ekki aðal- atriðið, heldur gangan sjálf. Svíar eru taldir 7.800.000. og þar kann ná- lega hver maður á skíðum. Þessi harðsótta þolraun þykir þar verð- ugt viðfangsefni karlmennskunnar, vitni úm viljaþrek, sönnun fyrir getu mannsins til að taka á mætti sínum. Menn, sem gegna hvaða störfum sem er í Svíþjóð, æfa sig undir gönguna a!lt árið, hvort sem eru rakarar eða ráðunéytisstjórar, prentarar eða pólitíkusar, því að það er frægð að hafa lokið göng- unni. í keppninni 1966 vildi það til að fimmtugur leigubílstjóri hneig niður á miðri leið, og ætlaði þá sá sem kom á hæla hans að fara að veita honum hjálp. „Nei. ég get ekki farið að hætta“, svaraði hinn þraut- reyndi skíðamaður og hélt áfram. Slíkan viljastyrk sýna menn ekki eingöngu í keppninni sjálfri, heldur er ströng sjálfsögun og iangvinnar æfingar undanfari hennar í marga mánuði. í Suður-Svíþjóð, þar sem oft getur verið snjólaust fram eftir vetri, nota margir gangstéttii-nar og setja þá hjólaskauta undir skíðin. Vasagangan er ekki einungis keppni hinna ungu manna, því að minnsta kosti þriðjungur þátttak- enda er yfir fertugt, og margir Sví- ar halda fimmtugsafmæli sitt há- tíðlegt með því að fara í gönguna. Árið sem leið var Nils Söderberg í 5543. sæti af þeim 5807 sem luku göngunni, en hann er 66 ára að aldri. Vasagangan á sér djúpar rætur í sögu Svíþjóðar. Sagan segir að í upphafi 16. aldar, þegar Svíar lutu stjórn Dana. hafi ungur maður að nafni Gústaf Eiríksson viljað hvetja Svía til að berjast fyrir frelsi sínu. Honum varð þó iítið ágengt og varð að flýja til Noregs. En Dalakarlar vildu ekki bregðast honum og sendu þeir tvo skógarhöggsmenn á hæla honum til að snúa honum við. Þeir náðu honum við Sálen, rétt hjá norsku landamærunum, og féllst hann á að koma aftur. Af Dala- körlum kom hann sér upp þeim her- styrk, sem hrakti Dani úr landi, og studdi hann sjálfan til konungdóms með nafninu Gústaf I. Vasa. En Vasagangan hófst þannig, ein- um 400 árum síðar, að ritstjórinn Anders Pers kom fram með tillögu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.