Úrval - 01.03.1967, Side 117
RISINN BOEING
115
vexti með yfirvarskegg og agaður
vel í uppvextinum. Hann varð að
ganga með gleraugu og það gaf
honum hlédrægt og heldur veik-
byggt yfirbragð, en það vantaði ekki
kraftinn fyrir því. Það mætti nefna
sem dæmi um, að maður þessi gætti
auranna sinna, að hann lét trjá-
grasflötinni við hús sitt af því að
stubba högginna trjáa standa eftir á
það var minna afgjald af jörð, þar
sem stubbar stóðu eftir.
Boeing smíðaði fyrstu vél sína
árið 1916 og var það flugbátur, sem
hann flaug sjálfur yfir Washington
vatni. Ellefu dögum síðar gerði lög-
fræðingur hans frumdrögin að lög-
um fyrir Boeingfélagið, og átti það
að framleiða flugvélar og reka einn-
ig farþega- og vöruflutninga fyrir-
tæki.
Boeingfyrirtækið varð síðan al-
menningshlutafélag og hóf flugferð-
ir milli San Francisco og Chicago
og William E. var eiginlega úr leikn-
um um leið og nafnið hans birtist á
veggjum verksmiðjunnar og árið
1930 yfirgaf hann félagið fyrir fullt
og allt og í illu skapi. Einn forstjór-
anna hefur látið hafa eftir sér í
því sambandi:
— Þetta var vaxandi fyrirtæki,
þegar Roosewelt stjórnin setti
hringalögin frægu og sagði, að þetta
fyrirtæki væri að verða of stórt og
það yrði að draga saman seglin.
Boeing svaraði stjórninni þannig:
— Ef það er á þennan hátt, sem
þið ætlizt til að maður reki við-
skipti eða fyrirtæki, þá getið þið
átt þetta fyrir mér. f samræmi við
þetta seldi hann hlut sinn í fyrir-
tækinu og hafði engin afskipti af
því framar nema það bar nafn hans
áfram.
William Boeing eldri dó fyrir tíu
árum síðan og sonur hans annast
kaup og sölu iðnfyrirtækja og hefur
skrifstofu í Seatle og kemst vel af.
Bill Boeing er samt alltaf dálítill
þyrnir í auga Boeingfyrirtækisins,
því að hann er sífetlt að kaupa
lánd undir iðnfyrirtæki og þá rjúka
blaðamenn upp til handa og fóta og
heimta af Boeing fyrirtækinu, að
það segi þeim hvað þeir ætli að
hafast að á þessu svæði, og það vill
stundum ganga illa að fá þá til að
trúa því, að Boeingfélaginu komi
þessi viðskipti ekkert við. Boeing
yngri hefur einnig nokkur óþægindi
af þessu sameiginlega nafni hans og
félagsins, því að honum berast sí-
fellt bréf frá fólki, sem hefur yfir
einhverju að kvarta eða vill koma
uppfinningum á framfæri, en hann
tekur þessu með meiri rósemi en
félagið. Hann þarf heldur ekki að
kvarta, til viðbótar fasteignasölu-
fyrirtæki sínu, á hann útvarpsstöð,
sem útvarpar aðeins sígildri tónlist
og er forstjóri í hinum og öðrum
fyrirtækjum meðal annars Pacific
National Bank, en faðir hans var
einn af stofnendum hans, og þessi
banki er enn aðalviðskip'tabanki
Boeingsfélagsins og enn hafa þessir
aðilar sama lögfræðifirma, en Bol
eing yngri neitar því ákveðið að
hann hafi nokkra fjárhagslegra hags-
muna að gæta í félaginu sjálfu og
við verðum að trúa honum.
William M. Allen var lögfræðing-
ur Boeingfélagsins áður en hann
var valinn forseti þess og frá þessu
lögfræðifirma hafa einnig komið