Úrval - 01.06.1970, Qupperneq 17
15
:☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
’.q.tf.Qim.sí.Wtf.tf.tf.si.fyq.Wq.Wy.q.tí.tytyq.if.wif.q.if.tytyif.wii.q.q.tf.ii.ij.if.q.fyq.sf.q.ij.tyQi}.!}.
□ PRESTUR NOKKUR auglýsti
eftir þjóni. Næsta dag eftir að aug-
lýsingin birtist í blöðunum, kom
ungur og vel klæddur maður til
hans.
— Getið þér kveikt í arni og bú-
ið til morgunverð, spurði prestur.
— Ég geri ráð fyrir því, svaraði
ungi maðurinn.
— En getið þér pússað allan silf-
urbúnaðinn, þvegið upp og haldið
húsinu vel hreinu?
—- Nei, heyrið þér nú, séra minn.
Ég kom hingað til að biðja yður að
taka að yður hjónavígslu ...
—0—
□ KENNSLUKONA nokkur hafði
lent í bílslysi og varð hún að leita
til tannlæknis. Tannlæknirinn tjáði
henni, að hann yrði að taka tvær
tennur úr efri gómi, og það mundu
líða sex vikur, þangað til unnt væri
að setja gervitennur í staðinn.
— Það gerir ekkert til, svaraði
kennslukonan. — Ég kenni nefni-
lega sjö ára krökkum aðallega og
flesta krakkana vantar einmitt
framtennurnar.
□ FANNY ESLER var frægasta
dansmær sinnar tíðar og lagði París, ,
Berlín, London og Vín undir sig og
síðan líka Bandaríkin. Hún kunni
að meta mátt auglýsinganna, og
eitt sinn er blaðamaður nokkuð bað
hana að gefa sér skó af henni til
minja, sendi hún honum ballettskó
fullan af dollurum.
Blaðamaðurinn varð að sjálfsögðu
himinlifandi, en gat þó ekki stillt
sig um að skrifa í þakkarbréfinu:
— Ó, guðdómlega Fanny! Hvers
vegna hafið þér svona lítinn og nett-
an fót?
—0—
□ HÚSMÓÐIR í NOREGI skrifaði
einu dagblaðanna bréf, þar sem hún
rakti raunir sínar út af ungdómin-
um nú á dögum. Hún hafði stórar
áhyggjur og þungar út af æskunni
og reynslu sína byggði hún á fimm
dætrum sínum. Hún sagði m.a. orð-
rétt í bréfinu:
— Þegar Farah Diba fékk sér
nýja hárgreiðslu, þurftu allar dæt-
ur mínar að fá nákvæmlega eins
hárgreiðslu. Og nú er Farah Diba
búin að eignast barn. Guð hjálpi
mér! Hvað á ég að gera?