Úrval - 01.06.1970, Blaðsíða 130
128
ÚRVAL
menn, seffi þeir treystu bezt og
vildu með því koma í veg fyrir
möguleika á fjárdrætti, og þarna
áttu þeir að gæta fjársins þar til
fulltrúar kassans kæmu á vettvang
og tækju allt verðmætið í sína
vörzlu. Samkvæmt samningum við
Phips og hertogann af Albemarle
átti ríkissjóður sem fyrr er sagt að
fá í sinn hlut tíunda hlutann af öll-
um fjársjóðnum og þegar umboðs-
menn ríkissjóðsins vógu fjársjóðinn
allan, reyndist hann 32 tonn.
Sagan um þennan happafund og
hin miklu auðæfi breiddist út um
allt England og vestur um haf, og
Vilhjálmur Phips, skipstjóri varð
hetja þessara daga. Menn með hans
framkvæmdasemi voru ekki á
hverju strái í Englandi eftir Siðbót-
ina, og kónginum féll vel við þenn-
an hressilega skipperson Nýja-Sng-
lands og treysti honum vel. Það leið
því ekki langur tími frá komu Phips
úr hinum fræga leiðangri, þar til
hann var kallaður til hallarinnar,
þar sem hann var sleginn til ridd-
ara fyrir þjónustu sína við kónginn.
Hann var síðar skipaður konxmg-
legur landstjóri í Massachusetts-ný-
lendunni, og hann gegndi því em-
bætti til dauðadags 18. febrúar 1695.
Vilhjálmur Phips lét eftir sig
greinileg merki á sögu Ameríku og
Englands og frægð hans byggist á
fleiru en fundi spánska fjársjóðs-
ins, en það var þó þessi fundur,
sem ruddi honum leiðina til viður-
kenningar og frægðar.
Viðbót þýðanda: í Columbia En-
cylopediunni, sem höfundur ofan-
nefndrar greinar styðst við, segir
enn fremur um Vilhjálm Phips að
hann hafi áður en hann var land-
stjóri verið yfirmaður setuliðs í
Boston og farið með það í herleið-
angur á hendur Frökkum við Port
Royale og unnið þar sigur, en síð-
an í annan leiðangur gegn Frökk-
um, en fór þá halloka. Eftir að hann
var orðinn landstjóri í Massachu-
settsnýlendunni, skipaði hann nefnd
til að rannsaka gildi galdraákærur,
en galdraofsóknir voru hvað mestar
þarna á síðustu æviárum hans.
Phips lenti loks í áköfum trúardeil-
um, þrætum út af viðskiptum og
stjórnmálum og í því vafstri öllu
vanrækti hann hernaðargæzluna í
nýlendunni og var stefnt til London
að svara til saka fyrir þá vanrækslu
en hann dó áður en hann stæði þar
fyrir rétti.
Líf þessa fátæka smaladrengs hef-
ur eftir þessu verið óvenju ríkt af
ævintýrum og sviftingum, en mað-
urinn kjarkmikill, þrekmikill, fylg-
inn sér og hugmyndaríkur.
Hér fylgja með ýtarleg kort af
grynningunum í kringum Bahama-
eyjar, þar sem fjársjóðurinn fannst
og spönsku skipin hafa áreiðanlega
sokkið. Kannski væri athugandi að
fara heldur suður á bóginn í sólina
að leita að fjársjóðum heldur en
norður í höf í þokubræluna að leita
að síld.
Ásgeir Jakobsson endursagði.