Úrval - 01.06.1970, Blaðsíða 68
66
ÚRVAL
undum. (Þrír stærstu barnafæðu-
framleiðendurnir hafa síðan hætt
að nota efni þetta). Síendurteknar
aðvaranir hans um hættuna, sem
mönnum stafar af cyclamat-gervi-
sykurefnum og DDT-skordýraeitri,
hefur átt sinn þátt í að hleypa af
stokkunum nýjum opinberum tak-
mörkunum á notkun slíkra efna.
Hann hefur líka ráðizt gegn óhóf-
lega feitum pylsum, óhreinum fiski,
dráttarvélum, sem hættir til að
velta og drepa þannig bændur, sem
þeim aka, og hinni hættulegu mis-
notkun röntgengeisla til lækninga.
Hann hefur frætt almenning' um
það, að sumar gerðir litasjónvarps-
tækja gefi frá sér hættulega mikið
magn af geislum. (Viðskiptanefnd
ríkisins hefur varar sjónvarps-
áhorfendur við því opinberlega að
sitja í minna en 6 feta fjarlægð frá
litasj ónvarpstækjum).
„ÉG STEND MEÐ FÓLKINU“
í augum margra Bandaríkja-
manna hefur Nader, sem er 36 ára
gamall, orðið tákn jákvæðra mót-
mæla gegn óbreyttu ástandi. Þegar
þessi friðsami byltingarseggur berst
gegn skriffinnskubákninu, notar
hann einu vopnin, sem hverjum
þegn eru tiltæk, lögin og almenn-
ingsálitið. Hann heldur því fram,
að hann sé alls ekki á móti „kaup-
sýslumönnum og iðnjöfrum“, held-
ur bara „með fólkinu“. „Hlutverk
mitt er að draga vandamálin fram
í dagsljósið, þar sem er ekki hægt
að láta eins og menn sjái þau ekki,“
segir Nader. Hann heldur sífellt
áfram af algeru miskunnarleysi að
reyna að fá þingmenn, er styðja
hag neytenda, til þess að stuðla að
því, að ný lög verði sett þeim til
verndar.
Nú er Nader farinn að sækja
fram á breiðari víglínu en áður.
Hann er farinn að rannsaka mál-
efni steinrunninna ríkisskrif-
finnskubáka, alls konar nefnda og
ráða. Hann hefur rannsakað hugs-
anlegt hirðuleysi og linku ýmissa
ólíkra opinberra stofnana, nefnda
og ráða, svo sem Loftmengunar-
eftirlitsráðs ríkisins og Járnbrauta-
ráðs ríkisins (en hann segir, að
Járnbrautaráðið sé samsekt járn-
brautarfélögunum, hvað snertir það
ástand, að í Bandaríkjunum bíða
2400 menn bana í járnbrautarslys-
um á ári hverju). „Nefndir og ráð,
sem fjalla eiga um starfrækslu-
reglur og öryggi, hafa látið undir
höfuð leggjast að sjá um, að jafn-
vel lágmarkskröfur á því sviði séu
uppfylltar,“ segir Nader. Hann
heldur því fram, að ástæðan sé að
miklu leyti sú, að yfirmenn þessara
nefnda og ráða hafi of náin tengsl
við járnbrautarfélögin, sem þeir
eiga að hafa eftirlit með, og séu
háðir þeim, enda noti þeir oft hið
opinbera starf sitt sem stökkpall til
vellaunaðra starfa á vegum járn-
brautarfélaganna sjálfra. Sam-
kvæmt talningu Naders eru 75%
af fyrrverandi nefndarmönnum
Samgöngumálanefndar ríkisins nú
í þjónustu samgöngufyrirtækja,
annaðhvort sem beinir starfsmenn
eða óbeinir. Hann heldur því fram,
að þar sé í rauninni um að ræða
„mútur, sem greiðist eftir á“. Hann
heldur því fram, að banna ætti
fyrrverandi starfsmönnum opin-