Úrval - 01.06.1970, Page 56

Úrval - 01.06.1970, Page 56
54 ÚRVAL ur víðar en í Noregi. Eitt atriði enn er vert að nefna frá Bergensárum Jóns. Veðurfræð- ingar fundu mjög til þess, hve treg- lega gekk að dreifa veðurfregnum til almennings, en venjan var, þar eins og hér, að senda þær með rit- síma til ýmissa staða úti um land og birta þær sem auglýsingu á al- roannafæri, með þeim ráðum, sem tiltæk voru. En breyting var þó í aðsigi. Útvarpið var að nema land í Noregi um þessar mundir, og miklar umræður voru í Bergen um það, hvernig því skyldi haga, og jafnvel deilur. Veðurfræðingarnir tóku drjúgan þátt í umræðunum, þeir skildu líklega manna bezt, hve mikil lyftistöng það gæti orðið starfi þeirra, að árangurinn, veðurspárnar, bærust hratt og tafarlaust til not- endanna, sjómannsins við færi eða nót og bóndans inni í afdal. Jón komst því á Björgvinjarárum sín- um í nána kynningu við flest þau atriði, er urðu þættir í ævistarfi hans á Islandi. Árið 1926 verða þáttaskil í starfi Jóns, því þá segir hann skilið við Bergen, og flytur heim. Átti þetta sér nokkurn aðdraganda. Árið 1917 hafði Jörundur Brynjólfsson borið fram frumvarp um stofnun „veður- athugunarstöðvar“ í Reykjavík, eins og það var orðað, en auðséð er á frumvarpinu, að átt er við vísi að veðurstofu. Frumvarpið dagaði uppi, var borið fram á næsta þingi, en þá vísað frá með rökstuddri dagskrá vegna ófullnægjandi und- irbúnings, þó var bent á þörf þess, að stjórnin athugaði málið nánar. Við samninga um sambandslögin eða litlu síðar munu Danir hafa bent á, að íslendingar þyrftu að taka við veðurathugunum hér á landi, og árið 1919 óskaði danska veðurstof- an eftir því sama. Ekki var þó stofn- uð veðurstofa að svo komnu máli, en nýstofnaðri löggildingarstofu falið starfið, þótt sú stofnun hefði nálega ekkert til slíkra hluta nema hæfileika og dugnað forstöðu- mannsins, Dr. Þorkels Þorkelsson- ar. Um 1924—25 þótti sýnt, að lög- gildingarstofuna mætti leggja nið- ur sem sjálfstæða ríkisstofnun, og var það gert með lögum árið 1925. En sjálfsagt þótti, að starfsemi veð- urfræðideildarinnar þyrfti að halda áfram og bæta við sérfræðingum. Leitaði þá Dr. Þorkell til Jóns um möguleika á, að hann kæmi heim. Svör Jóns urðu jákvæð, og þegar Veðurstofunni voru sett lög árið 1926, var Jón skipaður fulltrúi þar. Hin unga stofnun hlaut erfitt verkefni, hún átti að spá um eitt breytilegasta veðurfar á norður- hveli jarðar, og á svæði þar sem veðurfregnir voru einna strjálast- ar. En segja má, að árangurinn hafi verið ágætur miðað við aðstæður. Eftir að Jón kom til Veðurstofunn- ar jókst þessi starfsemi, og varð smám saman hans verksvið, sér- staklega eftir að Ríkisútvarpið hóf útvarp veðurfregna. Munu margir landsmenn hafa fengið sín fyrstu kynni af „veðurspám" á þeim árum, því dreifing þeirra varð miklum mun víðtækari en með þeim að- ferðum, sem áður höfðu tíðkazt. Jón átti mjög ríkan þátt í að móta form og flutning veðurfregnanna. Á þessum árum tíðkaðist, að Jón
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.