Úrval - 01.06.1970, Side 81

Úrval - 01.06.1970, Side 81
HVIRFILVINDURINN CAMILLA 79 Þá fór útidyrahurðin að losna úr dyraumgerðinni. Þeir John og Charlie lögðust upp að henni af öllum þunga, en þá skall flóðbylgja á húsinu og svipti upp hurðinni og þeytti þeim niður eftir innra and- dyrinu. Rafallinn blotnaði allur, og ljósin slokknuðu. Charlie sleikti varirnar og hrópaði til Johns: „Eg held, að nú séum við að komast í klípu. Það er saltbragð að vatn- mu.“ Sjórinn hafði nú gengið al- ,veg upp að húsinu, og sjávaryfir- borðið hækkaði enn stöðugt! „Farið öll út um bakdyrnar að bílunum!" hrópaði John. „Við lát- um börnin ganga á milli okkar frá einum til annars. Teljið þau. Níu!“ Börnin voru látin ganga mann frá manni eins og vatnsfötur við slökkvistörf. En það var ekki hægt að koma bílunum í gang. Sjórinn hafði komizt í rafkerfið. Stormur- inn var svo ógurlegur og vatnið svo djúpt, að það var ekki hægt að flýja fótgangandi. „Förum aftur inn í húsið!“ hrópaði John. „Teljið börnin! Teljið níu!“ Þegar inn var komið, skipaði John: „Allir upp í stiga!“ Hópur- inn kom sér fyrir í stiganum, sem var verndaður af tveim innveggj- um. Þau voru hrædd, móð og renn- blaut. Börnin settu læðuna, hana Spooky, og kassa með kettlingun- um hennar fjórum á stigapallinn. Hún leit óróleg á afkvæmi sín. Hundur nágrannans hringaði sig saman og fór að sofa. Nú var hávaðinn í storminum orðinn slíkur, að það var sem járn- brautarlest væri að fara framhjá í nokkurra metra fjarlægð. Húsið skalf og hreyfðist til á grunninum. Vatnið hækkaði hægt en stöðugt, er útveggirnir á neðri hæðinni byrjuðu að hrynja. Enginn sagði orð. Þau vissu öll, að það var ekki um neina undankomuleið að ræða. Þau vissu, að þau mundu annað hvort komast lífs af þarna í húsinu eða týna lífi. Charlie Hill hafði gerzt verndar- vættur nágrannakonunnar og barn- anna hennar tveggja. Konan var að því komin að sleppa sér af hræðslu. Hún greip í handlegg honum og tautaði í sífellu: „É'g kann ekki að synda. Ég kann ekki að synda.“ „Þú þarft þess heldur ekki,“ sagði hann við hana og reyndi að sýnast rólegur. „Þessu hlýtur að slota bráðum.“ Kona Koshaks gamla lagði hand- legginn yfir axlir eiginmanns síns og hvíslaði í eyra honum: „Ég elska þig.“ Hann sneri sér að henni og svaraði: „É’g elska þig.“ Og rödd hans virtist nú ekki eins hrjúf og venjulega. John fylgdist með því, er vatnið byrjaði að gjálfra við stigaþrepin. Og hann fann til nístandi sektar- kenndar. Hann hafði vanmetið fimbulmátt fellibylsins Camillu. Hann hafði gert ráð fyrir því, að það, sem hafði aldrei gerzt áður, gæti alls ekki gerzt. Hann grúfði andlitið í höndum sér og baðst fyr- ir án þess að segja orð: „Viltu bjarga okkur úr þessum ógöngum?" Augnabliki síðar lyfti fellibylur- inn öllu þakinu af húsinu með of- boðslegum sviptingum og þeytti því 40 fet í gegnum loftið. Neðstu þrep-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.