Úrval - 01.01.1974, Blaðsíða 28
26
ÚRVAL
ekki, aS það segi lögreglunni í fáti
eða fljótræði eitthvað, sem skaðað
gæti málstað þess. Sum ungmenni
geta verið svo óttaslegin undir
þannig kringumstæðum, að þau játi
á sig afbrot, sem þau hafa aldrei
framið.
Þegar til lögreglustöðvarinnar
kemur, skaltu fylgja þessu sama
ráði fyrir sjálfan þig. Þar til lög-
maður þinn kemur, skaltu bíða með
að gefa nokkrar upplýsingar um
barn þitt. Og umfram allt skaltu
forðast að blanda þér í yfirheyrsl-
ur lögreglunnar. Það getur gert illt
verra. Ég man eftir tilfelli, þar sem
ung stúlka var tekin fyrir þjófnað.
Skelfdir foreldrarnir voru með lög-
reglunni í að yfirheyra hana, og
stúlkan glopraði út úr sér, að hún
hefði stolið áður. Og þar með var
hún skyndilega bendluð við tvö af-
brot í stað eins áður.
Spurning: Eftir að tilkynnt hef-
ur verið um handtöku unglings,
hvort á þá að fara til lögreglustöðv-
arinnar, faðirinn eða móðirin elleg-
ar þau bæði?
Svar: Bæði, ef mögulegt er. Ungl-
ingurinn kemur til roeð að spjara
sig betur, ef hann veit, að báðir for-
eldrarnir standa með honum.
Spurning: Hvernig ganga hlutirn-
ir fyrir sig eftir að unglingur hefur
verið handtekinn?
Svar: Venjulega lætur lögreglan
unglinginn lausan á ábyrgð for-
eldranna, þar til yfirheyrslur fara
fram morguninn eftir. En sé um al-
varlegt brot að ræða ellegar for-
eldrunum sé ekki treystandi, þá er
hætt við að fangaklefi sé lausnin.
Spurning: Hver er bezta lausnin
til að fá ungling látinn lausan á
ábyrgð aðstandenda, þar til málið
verður tekið fyrir?
Svar: Flestir lögreglumenn hafa
samúð með yngstu afbrotamönnun-
um og vilja ekki kyrrsetja þá, nema
um sé að ræða alvarlegt tilvik.
Sýndu áhuga á velferð barnsins
þíns og lofaðu að sleppa ekki af
því hendinni, fyrr en það kemur
fyrir rétt. Forðastu að hafa í frammi
ásakanir gegn lögreglunni ellegar
hóta barninu að taka í lurginn á
því, þegar heim verður komið. Því-
líkt er einungis til að ýta undir þá
hugmynd, að sá seki sé bezt kom-
inn undir lás og slá.
Spurning: Hefur ungmenni að
einhverju leyti gott af því að dúsa
í steininum eina eða fleiri nætur?
Svar: Ekkert barn þarfnast slíkr-
ar tyftunar. Það er átakanleg reynsla
fyrir ungling að lenda bak við lás
og slá. Sumir verða óðir, og jafnvel
skaða sjálfan sig. Og undir öllum
kringumstæðum fjarlægjast þeir
foreldra sína.
Nýlega fékkst ég við mál, þar sem
seytján ára gamall námsmaður var
handtekinn vegna þess, að eiturefn-
ið marijuana fannst í heimavistar-
herbergi hans. Faðir piltsins lét lög-
regluna halda honum í fangelsi næt-
urlangt. Þegar hann kom þangað
um morguninn, var sonurinn nef-
brotinn og með glóðarauga, afleið-
ing af slagsmálum við eldri og
harðskeyttari fanga.
Spurning: Hvaða afstöðu eiga
foreldrar að taka til ungmennis,
sem lögreglan sleppir heim áður en
yfirheyrslur fara fram?