Úrval - 01.01.1974, Side 63

Úrval - 01.01.1974, Side 63
HÚN TENGIR EVRÓPU OG ASÍU 61 dæmis, en herlög hafa gilt í borg- inni síðan í stúdentauppreisninni 1971. Ég sá eitt hinna 100 herbergja. HRAUST KONA í HERNAÐI í fylgd með liðþjálfa fór ég eftir 150 metra löngum gangi og mætti mörgum undirforingjum með skjala töskur undir handlegg. Tveir voru að skafa málningu af veggjunum á fremur hversdagslegan hátt. Við komum að inngangi í einum af hornturnum hermannabúðanna. Mér var bent á hringstiga, sem lá upp að litlu herbergi á þriðju hæð. Það var einmitt þar, sem kjark- mikil ensk kona setti á stofn höf- uðstöðvar til hjálpar og fram- kvæmda, sem um getur í hetju- sögu hjúkrunar og lækninga. Nafn hennar var Florence Night- ingale. Herbergið hefur enn sama útlit og þá, meðan þessi frægasta hjúkrunarkona heimsins átti þar aðsetur. Það var í Krímstríðinu 3853 — 1856, þegar England og Frakkland gengu í bandalag með Tyrkjum til andófs gegn útþenslu Rússa á dög- um Nikulásar keisara hins I. Þessi styrjöld var mannskæð mjög, þar sem menn dóu ekki ein- ungis úr sárum, heldur líka úr sjúkdómum, vanhirðu og vosbúð. En fvrir stjórnsemi og dugnað Flor- ence Nightingale og samstarfsfólks hennar var unnt að lækka skatt mannslífa, sem hér skyldi goldinn. Og hér sitjandi í sæti hennar við skrifborðið hennar, gat ég auðveld- lega séð bregða fyrir skýrum mynd- um úr hetjusögu þessarar konu. Hjúkrun varð fyrir hennar afrek eitt helzta starf til hjálpar og verndar mannslífum og um leið hornsteinninn við stofnun Rauða krossins. Fáir ferðamenn heimsækja þetta herbergi, af því að það er í tengsl- um við viðkvæmt hermálakerfi. En rétt í næsta nágrenni er önnur söguleg miðstöð frá Krímstríðinu opin fyrir almenning. Það er brezka bálstofan úr þess- ari styrjöld, þar sem margir úr þessum grimmilegu átökum báru beinin, þar á meðal nokkrar af hetjum úr Herdeild Ljóssins, sem ódauðleg er úr ljóðum Tennysons. í Ushúdar — sem er stærsta að- setrið Asíumegin við ,,Sundið“, beið ég eftir ferjunni til Evrópu. Klukkustund leið án þess að langa bílalestin, sem beið eftir af- greiðslu rnjakaðist meira en 20 metra. Þá liðu níutíu mínútur, síð- an tveir tímar. Svo hætti ég að telja tímana nema til að veita því athygli, að fram hjá fóru 19 „sölu- menn“ eða burðarmenn meðan ég beið. Og þeir buðu allt til sölu milli vélhjólahlífa og jólasveina úr plasti. Seinna þennan sama dag, þar sem ég sat á gufusteini í glóðheitu tyrknesku baði, útskýrði ágætur baðvinur ástandið við ferjuna á eftirfarandi hátt og hvernig ætti að komast af án langrar tafar. . „Það eru tvær aðferðir til þess,“ sagði hann: „Að giftast og deyja.“ Sú erfðavenja ríkir í Istanbul að láta nýgift fólk og fylgjendur við jarðarfarir komast fram fyrir. Sem sagt brúðkaup og jarðarfarir í fremstu röð, allir aðrir bíða.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.