Úrval - 01.01.1974, Page 91
SANNLEIKURINN UM LÚSITANÍU
89
þýzkum kafbát. Og þá verður allt.
vitlaust.“
Einn viðstaddra spurði, hvenær
stórt enskt farþegaskip héldi næst
úr höfn. Það var Lusitanía, sem
átti að sigla frá New York þ. 1.
maí eða að tíu dögum liðnum.
Viereck hrópaði þá: ,,Það verður
að birta aðvörun, áður en skipið
leggur af stað!“
FRÆG AUGLÝSING
Viereck hélt af fundinum með
leyfi til þess að setja heppilega til-
kynningu í 50 dagblöð eftir eigin
vali. Hann ætlaðist til, að hún birt-
ist föstudaginn 23. apríl, þ. e. að
minnsta kosti viku áður en Lusi-
tanína héldi úr höfn. Hann áleit,
að sjö daga umtal og umræður
mundu veita farþegum nægan tíma
til þess að hætta við ferðina. Hann
samdi tilkynninguna í skrifstofu
sinni, og þegar því var lokið,
hringdi hann til Franz von Papens
höfuðsmanns, hermálafulltrúa
þýzka sendiráðsins í Washington,
til þess að skýra honum frá þessu.
Von Papen lagði blessun sína yf-
ir textann og stakk upp á því, án
þess að vilja láta bera sig fyrir því
opinberlega, að í stað undirskrift-
arinnar „Þýzka nefndin í New
York“ skyldi standa „Hið keisara-
lega þýzka sendiráð“. Hann út-
skýrði það fyrir Viereck, að sam-
kvæmt bandarískum lögum yrði
hægt að fara í skaðabótamál við
auglýsanda vegna atvinnurógs og
fyrir að hafa valdið brezkum skipa-
félögum viðskiptatjóni. Hann bætti
því við, að þýzka sendiráðið gæti
neitað því, að tilkynningin væri frá
því, og þá væri málið leyst.
Þessi auglýsing var send þá um
nóttina til 50 dagblaða, sem Vie-
reck hafði valið, ásamt ávísun fyr-
ir birtingarkostnaði. Hún var send
með sendiboða til dagblaðanna í
New York, svo að hún kæmist í
blöðin þ. 23. apríl. Auglýsingin
hljóðaði á þessa leið:
TILKYNNING!
Ferðamenn, sem hafa í hyggju
að halda yfir Atlantshafið, eru
minntir á, að styrjaldarástand ríkir
nú milli Þýzkalands og Stóra-Bret-
lands, að til hernaðarsvæðisins telst
einnig hafið í námunda við Bret-
landseyjar, að skip, sem sigla und-
ir fána Stóra-Bretlands eða fána
einhvers Bandamanna þess, eiga
það á hættu að vera sökkt á þess-
um slóðum og að ferðamenn, sem
sigla um hernaðarsvæðið á skipum
Stóra-Bretlands eða Bandamanna
þess, gera það upp á eigin áhættu.
Keisaralega þýzka sendiráðið,
Washington, Kóíumbíuhéraði.
Auglýsingin barst dagblaðinu
New York Sun skömmu fyrir mið-
nætti og, þar eð auglýsingadeildin
hafði þá lokað, var næturfréttarit-
stjóranum afhent umslagið, sem
merkt var ÁRÍÐANDI. Hann fann
það á sér, að þarna var um frétt-
næmt efni að ræða, og því hringdi
hann til Utanríkisráðuneytisins og
spurði það ráða. Sá yfirmaður, sem
var þar á næturvakt, stakk upp á
því, að dagblaðið bæri textann
undir þýzka sendiráðið næsta morg
un til þess að ganga úr skugga um,