Úrval - 01.08.1974, Page 64

Úrval - 01.08.1974, Page 64
62 ÚRVAL menn, sem horfðu á hlekkjaða svertingjana með viðbjóð 1 svipn- um. Og hann varð undrandi, þegar hann kom auga á mannveru, sem hlaut að vera hvít kona, en hún var með hár, sem var eins og strá á litinn. Og hann sá tvo svarta menn, sem voru augsýníilega af Mandinka- og Serereþjóðflokkun- um. Þeir gengu á eftir hvítum manni. Andlit þeirra voru alveg svipbrigðalaus. Kunta botnaði hvorki upp né niður í þessu. Hvern- ig gátu svertingjar fylgt auðsveipir á eftir „toubob“? Farið var með þrælana að stóru, ferhyrndu húsi úr brenndum leir. Á hliðum hússins voru örfá op, og fyrir þeim voru rimlar. í stóru her- bergi voru festir þykkir og breiðir járnhlekkir við úlnliði og ökkla Kunta og félaga hans, og voru hlekk irnir síðan festir við járnhringi í veggjunum. Kunta hnipraði sig saman, altekinn ótta, á köldu mold- argólfinu og bað Allah um að koma sér til hjálpar. Síðan féll myrkrið á. Kunta gat séð stjörnur í gegnum eitt af rimla- opunum nálægt sér. Þá varð hann rólegri, og hugsanir hans tóku að flögra um hugann eins og skuggar í draumi. Það var sem hann væri nístur í gegn, þegar hann minntist kæruleysis síns, sem hafði orðið til þess, að honum var rænt, þegar hann var að leita að heppilegum við til timburgerðar nálægt þorp- inu sínu, og hryllilegu ferðarinnar niður eftir ánni að staðnum þar ssm hinn risastóri bátur hvítu mannanna beið. Hann vildi jafnvel ekki flytja minninguna um ætt- ingja sína til þessa hataða lands hvíta mannsins, en samt gat hann ekki hindrað, að honum varð hugs- að til Omoro föður síns og Bintu móður sinnar og yngri bræðra sinna allra þriggja. Og síðan fór hann að snökta. Kunta fann, að það var næstum komin dögun, þegar hann heyrði hina hvössu rödd kennara síns, sjálfs „kintango", hljóma í höfði sér: „Það er viturlegt af mannin- um að fylgjast með atferli dýranna og læra af þeim“. Var þetta orð- sending frá Allah? Kunta var eins og dýr í gildru. Þau dýr, sem hann hafði vitað til, að sloppið höfðu úr gildru, höfðu ekki sleppt sér af bræði, heldur gætt þess að treina styrk sinn og afl, þangað til augna- blikshirðuleysi mannsins veitti þeim tækifæri til þess að skjótast burt á trylltum flótta. Kunta gerði sér grein fyrir því, að hann yrði að látast og líta þannig út í augum hvíta mannsins, sem hann hefði gefið upp alla von. í gegnum litla rimlaopið fylgdist Kunta með gangi sólarinnar og taldi þannig sex daga og sex nætur. Þrisvar á degi hverjum kom ein- kennisklæddur svartur maður með mat handa þeim. Kunta neyddi matnum í sig, þar eð hann vissi, að maturinn mundi veita honum afl. Að loknum sjöunda morgunverð- inum komu fjórir hvítir menn inn. Tveir þeirra staðnæmdust rétt fyr- ir innan dyrnar. Þeir héldu á byss- um og kylfum. Hinir losuðu hand- og fótajárn af föngunum. Kunta

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.