Úrval - 01.08.1974, Blaðsíða 69

Úrval - 01.08.1974, Blaðsíða 69
í LEIT AÐ UPPRUNA MÍNUM 67 Hann gekk af stað þangað og Kunta elti hann, haltrandi í fóthlekkjum sínum. Þegar þeir nálguðust akr- ana, gat hann séð svarta menn, sem voru að skera kornstöngla, en kon- ur og yngri menn tíndu þá síðan saman. Hvítur maður reið í áttina til þeirra á stóra hestinum sínum og átti nokkur orðaskipti við Samson. Samson tók nú upp langan, sterk- legan hníf og skar með honum eina tylft kornstöngla. Svo sneri hann sér við og benti til Kunta til merk- is um, að hann skyldi tína þá sam- an. Hvíti maðurinn rak hest sinn nær þeim með svipuna reiðubúna til höggs. Kunta var haldinn ofsa- bræði vegna getuleysis síns, en hann beygði sig niður og byrjaði að tína sman kornstönglana. Næstu daga þvingaði Kunta sig til þess að gera það, sem búizt var við af honum. Hann var alveg svip- brigðalaus, en hann tók samt vel eftir öllu umhverfi sínu. Hann komst að því, að hann var á stað, sem kallaður var Spotsylvániu- hreppur í Virginíu. Hvíta manninn, sem hafði flutt hann hingað, köll- uðu svertingjarnir „húsbónda“. í stóra, hvíta húsinu, þar sem hús- bóndinn bjó, var „kventoubob11, sem kölluð var „húsmóðir". Kunta hafði eitt sinn séð hana álengdar. Hún var beinaber og á litinn eins og magi á froski. Kunta frétti, að það, sem ræktað var á ökrunum, var kallað „korn“. Og þegar allir stönglarnir höfðu verið skornir og þeim staflað upp, þá fóru svert- ingjarnir að tína stóra, kringlótta ávexti, sem svertingjarnir kölluðu „grasker". En það, sem hann hafði mestan áhuga á og skildi jafnframt minnst í, var viðhorf hinna svertingjanna. Á kvöldin settist Kunta rétt fyrir innan dyragættina á kofanum sín- um og teygði fæturna út um dyrn- ar til þess að draga úr kvölinni, sem fótjárnin ollu honum. En hitt fullorðna fólkið tók sér þögult sæti á tréstólum í kringum eld, sem log- aði úti fyrir kofa gömlu eldabusk- unnar. Þessi sýn vakti hjá honum dapurlegar minningar um kvöld- eldana heima í Juffure. Venjulega tók konan, sem bjó til matinn í stóra húsinu, fyrst til máls. Hún hermdi eftir ýmsu, sem húsbóndinn eða húsmóðirin höfðu sagt. Og Kunta heyrði, að þau hin áttu í stökustu vandræðum með að gæta þess, að hlátrar þeirra bær- ust ekki yfir til stóra, hvíta húss- ins. En síðan dró úr hlátrinum, og svertingjarnir fóru nú að ræða um ýmislegt sín á milli. Kunta heyrði hjálparvana tón fangans í sumum röddunum og beiska reiði í öðrum röddum, jafnvel þótt hann vissi ekki, hvað raddir þessar voru að segja. Loks dó svo allt tal út, er ein af konunum byrjaði ð syngja og öll hin tóku undir. Kunta skildi ekki orðin, en hann fann ákafan dapurleikann, sem gegnsýrði lög- in. Þetta voru heiðnir svertingjar. Þeir átu jafnvel kjötið af hinum saurugu svínum. En samt var ým- islegt í fari þeirra algerlega afrískt,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.