Úrval - 01.08.1974, Side 67

Úrval - 01.08.1974, Side 67
í LEIT AÐ UPPRUNA MÍNUM 65 enn eitt stórt hús. Það virtist vera draugalega hvítt í skímunni frá stjörnunum. Brátt stanzaði kassinn. Hvíti maðurinn steig til jarðar, sagði eitthvað við þann svarta og fór síðan inn. Kassinn hélt síðan ískrandi áfram að nokkrum litlum kofum og stanzaði þar á nýjan leik. Kunta heyrði smell í því, sem keðj- an hans hafði verið bundin við. Svertinginn steig nú til járðar, gekk að vagnhliðinu og lyfti síðan Kunta með sterkum armi yfir hlið- arborðið og lagði hann frá sér á jörðina. Kunta, sem var mun minni, spratt samstundis upp og greip með hönd- unum um kverkar svertingjans eins og hýenukjaftur. Það heyrðist hrygluhljóð í svertingjanum. Síðan tók hann að berja og rífa Kunta, hvar sem hann náði til hans. Hann reif í andlit hans og handleggi og lét höggin dynja á honum, en Kunta herti enn takið, þangað til maðurinn skjögraði aftur á bak og féll máttlaus til jarðar. Kunta spratt á fætur og hljóp beint af augum í átt til fjarlægs skógar, sem hann gat komið auga á í tunglsljósinu. Hann gætti þess að hlaupa í hnipri. Hann ruddist yfir akur frosinna kornstöngla. Vöðvarnir í fótum hans voru mátt- lausir af notkunarleysi, svo að hlaupin voru honum mikil kvöl. En hann naut köldu næturgolunn- ar, og hann stundi af ánægju yfir því að vera orðinn frjáls aftur. Hann komst nú að skóginum og ruddist inn í hann. Hann braut sér leið gegnum runna og klifurjurtir. Hann hélt sífellt lengra inn í skóg- inn, en skyndilega var hann aftur kominn í skógarjaðarinn. Fram undan honum voru nú bara lágir runnar. Og honum hnykkti við, þegar hann sá, að hann var kom- inn að öðrum stórum akri og öðru hvítu húsi. Hann hljóp aftur langt inn í skóginn, þangað sem hann virtist vera þéttastur. Berir fætur hans voru orðnir rispaðir og tættir, svo ð blóðið lagði úr þeim. Síðan skreið hann á fjóriun fótum inn undir þétta runna og eyddi nóttunni þar. Hann kraup á kné í dögun, sneri i austurátt og bað til Allah. Kunta heyrði fyrst hundgána langt í fjarska. Hljóðið varð sífellt hærra og æstara. Og brátt gat hann einnig greint hróp manna. Hann ruddist trylltur í gegnum kjarrið. En þegar hann heyrði í byssu hvíta mannsins, sleppti hann sér af hræðslu og datt í vafningsviði, sem flæktist um fætur honum. Tveir hundar ruddust nú í gegn- um kjarrið, urxandi og bítandi. Hann reyndi að lemja þá burt með höndunum, og um leið mjakaði hann sér undan þeim eins og krabbi. Hann heyrði menn hrópa skammt frá sér. Aftur kvað við byssuskot, og urrandi hundarnir hörfuðu. Nokkrir menn, vopnaðir hnífum og kylfum, þutu nú í áttina til hans. Kunta þekkti svarta manninn, sem hann hafði tekið fyrir kverkarnar á. Hann var illilegur á svip. Að baki honum voru hvítir menn. Þeir voru blóðrauðir og kófsveittir af

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.