Úrval - 01.08.1974, Side 75

Úrval - 01.08.1974, Side 75
í LEIT AÐ UPPRUNA MÍNUM 73 jörð Allah, jurtunum, sem þau höfðu tekið í arf frá forfeðrunum. Nú dró svolítið úr kvöl hans, nema þegar hávaxni, hvíti maður- inn gerði að sári hans á degi hverj- um. Dag einn voru böndin leyst af Kunta, og honum tókst að rísa upp við dogg. Hann starði á um- búðirnar um stúfinn tímunum sam- an. Mestöll þau 18 regntímabil, sem hann hafði lifað (en þannig nefna Gambíumenn 18 ár, en slíkt grund- vallast á hinu árlega regntímabili), hafði hann hlaupið um og klifrað að vild. Honum fannst það ofboðs- legt, að hvitur maður skyldi höggva framan af fæti hans. Hann lét reiði sína og auðmýk- ingu bitna á svörtu konunni, þegar hún kom með mat til hans. Hann hrópaði illskulega að henni á Mand- inkamáli og lamdi tinbollanum í borðið, þegar hann var búinn að drekka úr honum. Og hann varð enn reiðari, þegar hann hafði lagzt út af aftur og minntist þess, að augu konunnar höfðu virzt fyllast hlýju, þegar hann jós úr skálum reiði sinnar yfir hana. Hvíti maðurinn tók sáraumbúð- irnar af að þrem vikum liðnum. Kunta æpti næstum upp yfir sig, þegar hann sá bólginn stúfinn, þak- inn þykku, brúnleitu hreistri. Hvíti maðurinn sáldraði einhverju yfir hreistrið, batt síðan laust utan um stúfinn á nýjan leik og hélt burt. Þrem dögum síðar sneri hann aftur með tvær sverar spýtur, sem greind ust í tvennt að ofan. Kunta hafði séð meitt fólk nota slíkar hækjur heima í Juffure. Þegar hvíti maðurinn var farinn, togaði Kunta sig á fætur með erf- iðismunum og reyndi hækjurnar. Honum tókst að sveifla líkama sín- um áfram nokkur skref með mikl- um erfiðismunum. Þegar Bell kom með morgunmatinn hans næsta morgun, sá hann ánægjusvipinn, sem breiddist yfir andlit hennar, vegna faranna, sem hækjurnar höfðu skilið eftir á moldargólfinu. Kunta leit á hana yggldur á svip. Hann neitaði að snerta matinn, fyrr en hún var farin út. En þá át hann hann sem hungraður úlfur. Hann vildi öðlast þann styrk, sem maturinn gat veitt honum. Að nokkrum dögum liðnum hoppaði hann um allt kofagólfið að vild. FIÐLULEIKARINN. Á þessum búgarði söfnuðust svertingjarnir saman á kvöldin við fjarlægasta kofann í kofaröðinni. í honum bjó ,,sasso borro“, mað- ur, sem hafði lifað í 50 regntímabil og var brúnn á hörund, sem benti til þess, að faðir hans hefði verið hvítur. Kunta gat heyrt brúna manninn tala næstum óaflátanlega. St.undum fóru þau hin að hlæja. Öðru hverju létu þau spurningarn- ar dvnja á honum. Kunta velti því fyrir sér, hver þessi maður væri. Dag einn, þegar Kunta gekk fram hjá honum á hækjum sínum, benti hann Kunta á að setjast á koll þarna við kofann. Kunta settist beint á móti manninum. ..Eg hef verið heyra, þú alveg bálreiður", hóf sá brúni máls. ,,Þú heppinn þeir drápu þig ekki! Lög-

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.