Goðasteinn - 01.03.1971, Page 7

Goðasteinn - 01.03.1971, Page 7
Með afnámi cinokunarverzlunar 1787 gerðist það eitt, að bænd- ur í Vestur-Skaftafellssýslu og austanverðri Rangárvallasýslu héldu urn sinn áfram að hafa höfuðviðskipti sín við Eyrarbakka, en voru frjálsir að því að hafa þau skipti við Eyjar, sem þeir töldu sér hagkvæm. Eyrarbakkavcrzlun var nær einráð um verzlun á Suðurlands- undirlendi fram um 1880. Lefoliiverzlun á Eyrarbakka var þá stórveldi með einokunaraðstöðu og einokunarhug, eins og bezt kom fram, er aðrir kaupmenn reyndu fyrst verulega að festa sig 1 sessi á Eyrarbakka og var neitað um. hafnaraðstöðu. Lefolii- verzlun var traust og á margan veg gott íyrirtæki í höndum hinna ágætu verzlunarstjóra, cr þar stjórnuðu lengst á seinni hluta 19. aldar, Guðmundar Thorgrímsen og tengdasonar hans, P. Nielsen. Á níunda tugi aldarinnar vaknar þessi verzlun við þann vonda draum, að nýir, hættulegir aðilar taka að mjatla utan úr veldi hennar. Viðnám hennar kemur m. a. fram i umburðarbréfum, sem send voru ti.1 viðskiptamanna á félagssvæðinu, þar sem boðin cru beztu kjör, flutningsstyrkur á lengstu flutningsleiðir, og lyga- sögur, sem svo eru nefndar, „kveðnar í kútinn“. Frá árinu 1892 eru varðveittar: „Reglur við vöruflutninga frá verzlun I. R. B. Lefoliis á Eyrarbakka" fyrir Vestur-Eyjafjöll. Reglur þessar eru í 10 greinum. Þar er kveðið á um, að vöruverð við móttöku undir Eyjafjöllum skyidi vera hið sama og á Eyrar- bakka, „nema öðruvísi sé ákveðið“. 1 annarri grein segir: „Vör- urnar eru sendar með gufuskipi, þegar veður, sjór og aðrar kringumstæður leyfa, og er verzlunin ekki bundin við neinn ákveðinn dag.“ Skipið gaf til kynna með flaggi. hvar afferma skyldi °g segir um það í sjöundu grein: „Þegar skipið kemur og hefur íslenzkt flagg í sigiutoppi, táknar það, að skipið á að afferma undir Vestur-Eyjafjöllum. Hafi það danskt flagg uppi, á það að afferma undir Austur-Eyjafjöllum. Eigi skipið að afferma á báð- um þessum stöðum, hefur það bæði danskt og íslenzkt flagg uppi. Sé danska flaggið ofar, á það fyrst að afferma undir Austur- Eyjafjöllum, cn sé íslenzka flaggið ofar, á það að afferma fyrst undir Vestur-Eyjafjöllum“. Þessar reglur tákna í raun og veru tímamót. Á næstu árum 5 Godasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.