Goðasteinn - 01.03.1971, Blaðsíða 36
áýndist sumum þunglega horfa, að félagið kynni að leggja upp
laupana þá og þegar, en aðrir voru bjartsýnni og auk þess reiðu-
búnir til að leggja talsvert á sig til að félag þeirra mætti halda
velli. Á aðalfundi 1932 var samþykkt að lcita til S. í. S. og biðja
það að lána hæfan mann til að innheimta sem mest af skuldum
og semja við skuldunauta félagsins. Talið var brýnt að ganga hart
að skuldugum utanfélagsmönnum. Þá var einnig samþykkt, að
þar sem tekjuafgangur félagsins cftir árið 1931 væri svo lítill að
ekki nægði fyrir lögboðnum sjóðstillögum, skyldi hallanum jafnað
niður á félagsmenn.
Á stjórnar- og fulltrúafundi hinn 17. dcscmbcr 1932 var hið
crfiða verzlunarárfcrði og skuldasöfnun enn til umræðu. Sam-
þykkt var þó, að félagið héldi áfram, þrátt fyrir bágindin, í von
um, að úr rættist. Á þcssum fundi bar framkvæmdastjóri fram
tillögu þess cfnis, að þar sem starfsemi Kaupfélagsins væri sífellt
að færast mcir og meir frá Hallgeirsey að Stórólfshvoli væri
óhjákvæmilegt að byggja yfir starfsemina þar efra. Lagði hann
til, að íbúðarhúsið í Hallgeirseyjarhjáleigu yrði flutt að Stórólfs-
hvcli á næsta vori og sett þar upp. Voru þcssar tillögur sam-
þykktar með miklum meiri hluta atkvæða.
Hinn 9. marz 1933 var haldinn stjórnarfundur K. H. L. í Hall-
gcirseyjarhjáleigu. Mættir voru þar Ágúst Einarsson, framkvæmda-
stjóri, Sigurður Vigfússon, formaður, Jón Gíslason, Ey, Sigurþór
Olafsson, Kollabæ, Guðjón Jónsson, Tungu, varamaður Auðuns
Jónssonar, og cndurskoðendur fclagsins Guðjón Jónsson, Hall-
gcirsey og Sæmundur Ólafsson, Lágafelli. Einnig sat fundinn
Kristján Ólafsson, Seljalandi, sem þá var orðinn útibússtjóri undir
Eyjafjöllum. Ákveðið var á þcssum fundi að flytja kaupfélagið,
hcimili þess og varnarþing að Stórólfshvoli og því beint til næsta
aðalfundar að brcyta 1. grein félagslaganna þannig, að í stað
Kf. Hallgeirseyjar, Landeyjum, K. LI. L., kæmi Kf. Hallgcirseyjar,
Stórólfshvoli, K.H.S. Var þetta endanlega samþykkt á aðalfundi
27. apríl 1933, cn ákveðið að hafa útibú í Hallgeirsey fyrst um
sinn.
Þessi flutningur kaupfélagsins frá brimströnd Landeyja upp í
miðbik héraðsins við Stórólfshvol, var eðlileg afleiðing þeirrar
34
Goðasteinn