Goðasteinn - 01.03.1971, Blaðsíða 30
það hin þarfasta framkvæmd, sem bjargaði ekki aðeins einu víð-
áttumesta og grasgefnasta gulstararengi landsins undan vatns-
ágangi og Þykkvabænum þar með frá eyðingu, heldur kom byggð-
inni um leið í þjóðbraut við vegakerfi Suðurlands. Tóku þá bænd-
ur þar ncðra að flytja mjólk á bílum beint á Reykjavíkurmarkað
og nauðsynjavörur sínar að sunnan. Voru þeir þar með komnir
í sérstöðu við mikinn hluta félagsmanna K. H. L. á hinu óbrúaða
vatnasvæði Rangárvailasýslu. Einnig kom það til, að vöruscnding
til Þykkbæinga haustið 1925, kol, olía og fleira komst ekki á
áfangastað, hcldur lá í Eyjum vetrarlangt. Var þctta nokkurt
tjón fyrir félagið og einnig varð það til þess að Þykkbæingar
gerðu sér Ijósar en áður, að þeir ættu ekki lcngur samleið með
Kaupfélagi Hallgeirseyjar. Skildu því leiðir árið 1926 og varð fullt
samkomulag um uppgjör. Þykkbæingar tóku að sér að selja vöru-
birgðir sínar og greiða sinn hluta skulda félagsins, en voru að
öðru leyti undanþcgnir frekari fjárkröfum sem samábyrgir með-
limir K. H. L. Upp úr þessu tók svo Friðrik Friðriksson í Mið-
koti að rcka sveitaverzlun í Þykkvabæ, er síðar varð umfangs-
mikil.
Árið 1926 var erfitt hjá kaupfélaginu. Að vísu varð smávægileg-
ur rekstrarhagnaður, en skuldir félagsmanna höfðu aukizt og skuld
félagsins við S. í. S. ekki lækkað, svo sem áskilið hafði verið í
samningi árið áður.
í ársbyrjun 1927 komu enn frarn raddir um að leggja félagið
niður eða breyta því í pöntunarfélag. Kosin var ný nefnd til
viðræðna við stjórn og endurskoðanda S. í. S., og voru í henni
Guðbrandur Magnússon, Ágúst Einarsson og Guðjón Jónsson í
Tungu. Á fulltrúafundi í apríl um vorið skýrði kaupfélagsstjóri
frá störfum nefndarinnar og niðurstöðum viðræðna. Tillögur sam-
kvæmt þcim voru síðan lagðar fyrir fundinn og áskilið jafnframt,
að félagið skyldi leyst upp yrðu þær ekki samþykktar. Tillögurnar
voru á þá leið, að hver deild tæki að sér skuldir félagsmannn
sinna og gæfi út skuldabréf fyrir þeim til S. í. S. og greiddust
þau með jöfnum afborgunum á næstu tólf árum. Hver deild
skyldi og taka á sig halla, er stafaði af niðurfærslu á skuldum
utanfélagsmanna, vörubirgðum, áhöldum og fasteignum félagsins.
28
Goðasteinn