Goðasteinn - 01.03.1971, Blaðsíða 81
Vatgerður GísÍadóttir:
Litið í eigin barm
Frú Valgerður Gísladóttir að Rauðalæk 24 í Rcykjavík hefur
sent Goðasteini nokkur ljóð og stökur. Valgerður á til skáld-
mæltra að telja. Móðir hennar, María Þorvarðsdóttir prests í Holti,
Jónssonar, var þckkt fyrir ljóðagerð sína. Amma Valgerðar og
nafna, Valgerður Bjarnadóttir, síðasta kona sr. Þorvarðs í Holti,
var vel hagmælt, og eru nokkrar vísur hennar enn í minni manna.
Sr. Þorvarður Þorvarðsson í Vík í Mýrdal, bróðir Maríu, var gott
I jóðskáld.
María Þorvarðsdóttir var fædd í Holti undir Eyjafjöllum 1.
fcbrúar 1862. Vorið 1916 fór hún austur á æskustöðvar sínar. Þessi
vísa varð til, er hún sá Eyjafjöllin:
Eyjafjalla brostin brá,
búin mjallar kali.
Virðist alla vini brá
í væna fjalla dali.
Þegar sól setzt í sæ,
þegar svalt er í bæ,
leitar hugurinn hvíldar hjá þér,
ó, þú guðlega vald,
sem að heimtar þitt gjald.
Hvar er hvíldin, sem lofuð var mér?
Goðasteinn
79