Goðasteinn - 01.03.1971, Page 43

Goðasteinn - 01.03.1971, Page 43
Hofi að Breiðabólstað til greftrunar, en það mundi varla hafa verið gert, ef um langan veg hefði verið að fara. Það er því varla líklegt að Papýli hafi verið á Síðunni, því að þar cr ekki vitað um neitt Hof. Þó væri e. t. v. hugsanlegt, að bær með því nafni hafi farið undir hraun snemma á öldum og gæti þá hafa verið nær Breiðabólstað á Síðu, en Hof í Oræfum og Hofstaðir í Álftaveri. Ef gera mætti ráð fyrir þessu, væri freistandi að setja Papýli í samband við papana í Kirkjubæ, sem Landnáma getur um. í Rangárvallasýslu mun einna skemmst á milli Hofs og Breiða- bólstaðar. Ljóst cr þó af Landnámu, að Stóra-Hof kemur ckki til greina í sambandi við Papýli, því þar var sama ættin mann fram af manni, en hún rekur ekki ábúendur á Minna-Hofi og Breiðabólstað, cn það þarf ekki að þýða, að Úlfur hafi flutt þapgað. Þó gæti hafa vcrið ástæða fyrir hann að vilja komast í nágrenni Vorsabæjar ef hann hefur átt þess kost, því líkur eru til að þar hafi frændfólk hans búið. En rök sýnist mér skorta til að telja víst að Papýli hafi verið í Fljótshlíð. Ef til vill hefur Úlfur vorski þó ekki þurft að flytja svo langt. Oft hefur sú spurning hvarflað að mér, hvort bæjarnafnið Hof geti verið frá heiðni. Það var raunar eðlilegt, að menn kenndu bæi við hofin, eins og menn hafa eftir að kristni var lögtekin, kcnnt þá við kirkjur, en engum hefur þó komið til hugar að nefna bæ sinn Kirkju. Hafi viðhorf heiðinna manna verið svipað til hofanna og krist- inna manna til kirkna, er ekki líklegt, að þeir hafi nefnt bæi sína Hof, en Hoffell, Hofteigur og Hofsstaðir eru nöfn, sem eðlilegt er að heiðnir menn hafi notað. En eftir að helgi hofanna var horfin, var ekkert því til fyrir- stöðu að nöfnin væru stytt, eða þeim breytt, þannig að þau yrðu einfaldlega Hof. Sé þetta rétt, er hugsanlegt, að um einn bæ hafi verið að ræða, sem í öndverðu hafi heitið Breiðabólstaður, en síðar verið kennd- ur við hof, sem á jörðinni hefði verið. Nú vill svo til, að Landnáma getur ekki um það, hver fyrstur Godasteinn 41

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.