Goðasteinn - 01.03.1971, Blaðsíða 67
önnur lítil, 3 merkur vax, tjöld um kirkju með dúkum, klukkur 6,
Maríuskrift, Pctursskrift, Tómasskrift postula. skálir með metum,
kista sæmileg, vatnkall, munnlaugar tvær, vatnsketill ....
Þangað liggur tíund af fjórum bæjum og lýsitollar. Kirkjan á
12 aura hins fjórða hundraðs í bókum. Kirkjan á fjórðung skógar
í Bláfelli .... Þar skulu vera prestar tveir og syngja að jafnaði.
Þar skal og vera djákn.“
Áður hefur vcrið greint frá því, að Eyjólfur Einarsson hafi
gefið Dalskirkju hálfa Syðstu-Mörk og hálfan Sauðhúsvöll tii
viðbótar fyrri helmingaeign kirkjunnar í þeim jörðum. Sú gjöf
virðist þó ekki hafa haldist, því í Gíslamáldaga um 1570 eru
þessar jarðir aðeins taldar að hálfu cign kirkjunnar. Eign kirkj-
unnar í skrúða og kirkjugripum hefur þá mjög gengið saman, og
mun mega rekja það til hirðuleysis Einars Eyjólfssonar hins eldra
og siðaskiptatímans.
Fyrstu lýsinguna á kirkjunni sjálfri er að finna í Visitazíubókum
Brynjólfs biskups Sveinssonar. Hér skulu nokkur atriði tilfærð úr
visitazíum 17. og 18. aldar: 1644. „Kirkjan í sjálfri sér ný og sterk
en ábúin með þil nema reisiþil og standþil fyrir framan og nokkuð
af bjórþili.“ Kirkjan er þá sex stafgólf.
1679: „Kirkjan sjálf með kórnum í sex stafgólfum, sterk og
stæðileg, alþiljuð bak og fyrir og í ræfri. Hálfþil milli kórs og
kirkju með þrísettum pílárum. Altari með gráðu og prédikunar-
stóll með snikkverk. Vindskeiður framan fyrir kirkjuna og hurð
á járnum með skrá.“
1741: „Hún er í sjö stafgólfum, þiljuð í hvolf og umhverfis,
nema í fremsta stafgólfi sunnan fram eru mestöll þilin í burtu og
úr fallin. Skakksláin er cftir og skammsillan. Hinumegin er það
sama stafgólf ekki heldur duganlegt. í bak og fyrir er kirkjan og
so þiljuð undir og yfir bitum, með tvísettum vindskeiðum yfir
að framanverðu. í kórnum cru bekkir fóðraðir frá altari til dyra,
með bríkum að framan. Sú syðri er mikið hláleg.
Kórinn er afdeildur frá framkirkjunni með dyrastöfum, dyra-
umbúnaði, skammþiljum, þverslám og tvennum pílárum á milli
þeirra. í framkirkjunni eru sjö kvcnstólar með bríkum og bak-
slám. Undirstokkur fjögra þeirra fremstu er mikið vanvirðulegur
Goðasteinn
65