Goðasteinn - 01.09.1972, Qupperneq 6
grímssonar, Gaulverjabæ, Páls Briem sýslumanns á Árbæ og Þórð-
ar Guðmundssonar, alþingismanns í Hala. Pöntunarfélagið rak
mikla verzlun og verzluðu við það bændur á Suðurlandsundir-
lendinu um árabil. Síðar voru stofnuð kaupfélög með aðsetri bæði
á Eyrarbakka og Stokkseyri. Hvorugt þeirra félaga stóðst áhrif
heimsstyrjaldarinnar 1914-1918, né gamla selstöðuverzlun Lefoli.
Verzlun Árnesinga og Rangæinga fluttist þá til Reykjavíkur að
mestu. Austur-Skaftfellingar sóttu þá meiri verzlun í Höfn í
Hornafirði og Vestur-Skaftfeiiingar til Víkur.
Fyrstir til að reyna nýjar leiðir voru bændur úr austanverðri
Rangárvallasýslu, sem bjuggu fjærst Reykjavík. Þeir stofnuðu
kaupfélag Hallgeirseyjar með aðsetri í Hallgeirsey í Austur-
Landeyjum árið 1919. Síðar voru stofnuð Kaupfélag Árnesinga,
með aðsetri að Selfossi, laust fyrir 1930, og Pöntunarfélag Holta-
manna með aðsetri að Rauðalæk árið 1930.
Ég ætla að minnast ofurlítið á stofnun Pöntunarfélags Holta-
manna. Á aðalfundi Rauðalækjarrjómabúsins 6. febrúar 1930 var
rætt um að stofna pöntunarfélag fyrir Ása- og Holtahrepp og
fimm manna nefnd kosin til að undirbúa lög fyrir nefnt félag.
Þessir menn voru kosnir: Guðjón Jónsson, Ási, Bjarni Jónsson,
Meiri-Tungu, Ólafur Ólafsson, yngri, Lindarbæ, Gunnar Run-
ólfsson, Syðri-Rauðalæk, og Þorsteinn Þorsteinsson, Ásmundar-
stöðum. Mánudaginn 21. apríi 1930 komu nefndarmenn saman
að Syðri-Rauðalæk til að semja lög fyrir væntanlegt pöntunarfélag.
Formaður nefndarinnar var Ólafur Ólafsson, Lindarbæ, og ritari
Bjarni Jónsson, Meiri-Tungu.
Stofnfundur Pöntunarfélags Holtamanna var haldinn 1 Rauða-
lækjarskála 11. maí 1930. Fundarstjóri var kosinn Ingimundur
Jónsson, Hala og ritari Helgi Hannesson, Sumarliðabæ. Tuttugu
manns mættu á fundinum. Lög félagsins eins og nefndin samdi:
voru samþykkt án breytinga. í fyrstu stjórn félagsins voru þessir
menn kosnir: Bjarni Jónsson, Meiri-Tungu,, Helgi Hannesson,
Sumarliðabæ, Ólafur Ólafsson, Lindarbæ. Varamaður í stjórn
Hannes Friðriksson, Arnkötlustöðum, Endurskoðendur: Haraldur
Halldórsson, Efri-Rauðalæk, og Þorsteinn Þorsteinsson, Ásmund-
arstöðum. Á fyrsta stjórnarfundi var Bjarni Jónsson, Meiri-Tungu,
4
Goðasteinn