Úrval - 01.03.1979, Blaðsíða 58
56
ÚRVAL
Ódýrferðalög og matur
Þingmenn eiga kost á mikÍum
ferðalögum. Sem dæmi má nefna að
árið 1975 fóru 308 þingmenn í ferðir
úr landi í opinberum erindagerðum, í
544 skipti. Svo vill til að meira en
helmingur þessara ferða vom til
Evrópu, þar sem búa 7 til átta prósent
mannkyns, en aðeins um 5 prósent til
Suður- og Austur Asíu, þar sem
helmingur mannkyns á heima.
Venjulega ferðast þingmenn í
flugvélum hins opinbera. En þar sem
þær eru yfirleitt stórar, er litið svo á
að ekkert sé því til fyrirstöðu að þeir
taki fjölskyldu eða nána vini með.
Það er hvort sem er rúm í flugvélinni.
Þingmenn fá 75 dollara á dag, sem
kallað er fé til að greiða uppihald, en
þar sem allur kostnaður er greiddur
fyrir þá, em þetta 1 raun vasa-
peningar. Þá er það siður að þing-
menn og samferðafólk þeirra þurfí
ekki að fara í gegn um tollskoðun og
flytur því oft heim með sér ótrúleg-
ustu hluti.
Þjónusta sem þingmönnum er
veitt, er margvísleg. Öldungadeildar-
þingmenn borða 1 einum íburðar-
mesta matsal, sem til er í Bandaríkj-
unum. Gólfteppin em þykk og
risastórar ljósakrónur úr kristal hanga
í loftum. Þar sem salurinn er inn 1
miðju húsi em gervigluggar úr lituðu
gleri, upplýstir utanfrá, en það besta
er þó verðið. Þar er hægt að fá humar
fyrir þúsund krónur, sem kostar að
minnsta kosti þrisvar sinnum meira í
venjulegu veitingahúsi og varla eru
minna en tuttugu ár síðan almenn-
ingur gat fengið stærstu nautasteikur
fyrir tvö þúsund krónur, en í
matstofu öldungardeilarinnar
stendur tíminn kyrr. Afleiðingin er sú
að taprekstur á matstofunni nemur
250 milljónum króna eða 2.5
milljónir króna á mann á ári, og er þá
ekki reiknað með húsnæðiskostnaði,
tækjakostnaði í eldhúsi og öðrum
slíkum smámunum, og þar að auki
em laun þjóna og matreiðslumanna
greidd af þinginu.
Engar stöðumælasektir
Ekkert smáatriði er svo smátt, að
ekki sé um það hugsað. Mánaðarlega
fá þingmenn senda greiðu og
hárbursta. Þá er sérstök rakarastofa
fyrir þingmenn þar sem klipping,
hárþvottur og greiðsla kosta innan við
þúsund krónur, eða innan við
þriðjung þess sem algengt er annars-
staðar.
í neðanjarðarbílageymslum hafa
tíu menn þann starfa að þvo og bóna
bíla þingmanna. Og ekki þurfa þeir
að hafa áhyggjur af stöðu-
mælasektum. í visku sinni hafa
þingmenn lögleitt, að þeir hafí
sérstök skrásetningarnúmer á bílum
sínum, og em samkvæmt þeim
lögum hafnir yfír smámunalega
afskiptasemi lögreglu á svipaðan hátt
og sendiráðsmenn.
Á Capitol Hill er gróðurhús. Þar
starfa 57 manns og eitt helsta
verkefni þeirra er að sjá um að tvö ný
pottablóm séu sett í skrifstofur 535