Úrval - 01.03.1979, Blaðsíða 96
94
ÚRVAL
skærasta peran í blaðamannaliðinu,
var þó hægt að treysta honum. Þess1
vegna varð ég Ted Morgan.
Við athöfnina, sem fylgdi form-
legri ríkisfangsbreytingu, skiptu 30
aðrir nýir borgarar einnig um nafn.
Það er ekki óalgengt. Raunar gera
fæstir sér grein fyrir því, hve algengar
nafnabreytingar eru í þessu landi.
Þær eru einn liður frelsisins, sem
mönnum yfirsést oft.
í Ameríku er það hluti af
menningunni að skipta um nafn. Sú
erfðavenja nær aftur til indjánanna,
sem breyttu táknrænum nöfnum
sínum til samræmis við afrek sín.
Höfðingi Piegan svartfótanna breytti
til dæmis nafni sínu úr ,,Skjöldótti
elgur” í ,,Bjarndýrahöfðinginn” eftir
að hann hafði lokið sigursælli
herferð. Þar voru nafnabreytingarnar
eins konar stöðuhækkun.
Stundum voru nafnaskiptin ekki
svona formleg. Nöfn fyrstu þýsku
landnemanna tóku iðulega aðeins
hljóðbreytingum til að falla betur að
enskunni. Rockefeller-ættin kom
upprunalega frá Rínarlöndum og hét
þar heima Rockenfeller. Vissu Ezra
Pound, Herbert Hoover og Pershing
hershöfðingi, að upprunalega voru
nöfn þeirra Pfunds, Hubers og
Pfoershings? Veit Walter Cronkite að
forfeðranafn hans er Krankheit
(lasleiki)?
Stundum breyttust nöfnin einfald-
lega til samræmis við daglegan fljóta-
skriftarframburð. Hugenottarnir frá
Hoilandi, De La Noyes, urðu
Delanos. Boncoeur varð Bunker.
Custer hershöfðingi var afkomandi
málaliða að nafni Kuester. Lincoln
var að líkindum afkomandi fjölskyldu
sem hét Linkhorn.
En oft eru breytingarnar gerðar af
yfirlögðu ráði. Faðir Paul Revere
breytti nafni sínu úr Appollos
Rovoire , ,einfaldlega til að lýðurinn
ætti auðveldara með að segja það.”
Prédikarinn Billy Sunday þýddi
einfaldlega nafn föður síns, þýska
innflytjandans Sonntag.
Ein ástæða nafnbreytinganna var
sem sagt að hrista af sér óþægilega
arfleifð frá öðru þjóðerni. En
orsakirnar voru fleiri. Nefnum
nokkrar:
Ovart: Þegar forfeður Walter
Mondale, varaforseta, komu vestur
um haf frá Noregi, hétu þeir Mundal.
Skrifstofumaður á Ellisey bætti e-inu
við, og annar skráði nafnið sem
Mondale í Minnesota, þegar fólkið
tryggði sér land. Til þess að koma í
veg fyrir öll tvímæli um eignarétt
landsins, tók fjölskyldan þessa útgáfu
nafnsins upp.
Flótti: í Ameríku er fólk alltaf að
hverfa. Það eru þeir sem verða að
hverfa af hagkvæmnisástæðum, þeir
sem hafa fengið meira en fylli sína á
fjölskyldulífi, eða fellur einfaldlega
ekki við þá persónu, sem þeir eru.
Sumir segjast ætla að skreppa út á
horn eftir sígarettum, en stökkva þess
í stað inn í aðra tilveru. Það er auðvelt
að skipta um nafn.
Spéhræðsla: Sígilt er dæmið um