Úrval - 01.03.1979, Blaðsíða 47
45
SUÐURKÓREA OG HARÐSTJÓRI HENNAR
„Forsetinn telur það tímasóun að
standa í kosningum. ’ ’
Þótt suðurkóreaoir séu þakklátir
fyrir þann stuðning, sem þeir hafa
þegið af bandaríkjamönnum, eru
þeir mjög sjálfstætt fólk. Þeir ætlast
ekki til þess að bandarískur her verði
þar um aldur og eilífð. Þjóðin hefur
lagt drög að því að verða hernaðarlega
jafn sterk norður-kóreönum.
Fjárveitingar til varnarmála hafa verið
hækkaðar stórlega, og unnið er að
uppbyggingu landvarna á allan hátt.
Með því að vernda friðinn í aldar-
fjórðung hefur bandarríkjaher gert
þessari Asíuþjóð kleift að verða mesta
efnahagsundur þriðja heimsins.
Smám saman fara suðurkóreanir að
treysta sér meira á móti
fjandmönnunum, bræðrum sínum í
norðri, og jafnframt má telja líklegt,
að stjórnin verði lýðræðislegri. En
eins og annars staðar í Asíu, er líklegt
að einhverskonar harðstjórn verði
lífseig. Það er ekki nóg að hafa
bandarískan stuðning — það þarf
menn eins og Park til að lyfta heilli
þjóð frá örbirgð til allsnægta. ★
Lifnarðarhættir kennslukonunnar hafa breyst verulega síðustu 50-
60 árin. I stéttarblaði kennara frá 1915 má finna þessar hegðurnar-
reglur kennslukvenna þeirra tíma:
★ Þú mátt ekki giftast meðan starfssamingur þinn er í gildi.
★ Þú mátt ekki láta sjá þig í félagsskap karlmanna.
★ Þú verður að vera heima hjá þér frá klukkan 8 að kvöldi til 6 að
morgni, nema skólastarfíð krefjist annars.
★ Þú mátt ekki láta sjá þig á reiki í miðborginni eða fara inn í
ísbúð.
★ Þú mátt ekki fara út fyrir borgarmörkin nema með leyfi
skólanefndarformannsins.
★ Þú mátt ekki ferðast í bíl eða vagni með karlmanni, nema hann
sé faðir þinn eða bróðir.
★ Þú mátt ekki reykja sígarettur.
★ Þú mátt ekki klæðast skærlitum fötum.
★ Þú mátt ekki undir nokkrum kringumstæðum lita á þér hárið.
★ Þú verður að vera í að minnsta kosti tveimur undirpilsum.
★ Pilsin mega ekki vera styttri en fimm sentimetrum yfir ökla.
★ Til þess að halda skólastofunni hreinni og snyrtilegri verður þú
að sópa gólfíð minnst einu sinni á dag, skúra það minnst einu sinni í
viku, hreinsa töfluna minnst einu sinni á dag, og kveikja upp
klukkan 7 á morgnana, svo stofan sé orðin notaleg klukkan 8.
Buckeye Farm News