Úrval - 01.12.1980, Page 17
UPP Á EVEREST ÁN SÚREFNIS
15
,,Ég vissi vel að margir töldu þessar
ferðir, sem ég fór einn, ábyrgðar-
lausar,” skrifaði hann eitt sinn. ,,En
maður eins og ég, sem hefur þjálfað
sig samviskusamlega og hefor
margra ára reynslu að baki er líklega
ekki í eins mikilli hættu þegar hann
klífur erfiðar leiðir einsamall og sá
maður sem leggur í helgargöngu
án þess að vera undirbúinn.'
Árið 1970 voru Messner og bróðir
hans Giinther félagar í hópi sem tókst
á við Rupal-hlið Nanga Parbat en
hún hafði ekki verið klifin áður.
Bræðurnir urðu fyrstir á tindinn, þeir
klifo það sem annar fjallgöngumaður
kallaði ,,þrjú þúsund metra af lóð-
réttum kletti og snjó”. En niður-
leiðin var líkust martröð og Gúnther
grófst undir snjóflóði.
Reinhold Messner uppi á Nanga Parbat.
Myndina tók hann sjálfur.
Á brúninni
,,Þetta er líklega I eina skiptið,”
segir Messner, ,,sem ég var í tvo til
þrjá daga stöðugt þaninn til hins
ýtrasta — bæði líkamlega og and-
lega. ’ ’ Tjaldlaus komst hann lífs af en
missti fimm tær og hluta af fjórum
vegna kals. En í ágúst 1978 þá kieif
hann Nanga Parbat í annað sinn —
einsamall.
Það afrek hans sem vakið hefur
mesta athygli átti sér stað 8. mai
1978. Messner og Peter Habeler, sem
hefur oft klifið með honum, náðu
tindi Mount Everest (8.848 m) án
nokkurra súrefnistækja, afrek sem
aðrir fjallgöngumenn vom fullvissir
um að væri ógerlegt.