Úrval - 01.12.1980, Side 40
38
ÚRVAL
kvalirnar koma aftur, kannski ári
seinna, endurtaka læknarnir aðferð-
ina með sérstaklega kaldri stungu.
Margaret Allen og þúsundir ann-
arra sjúklinga sem eru í sömu sporum
og hún eiga hljóðlátri byltingu í
lækningum á sviði líkamlegra þján-
inga bata sinn að þakka. Vanalega
hafa kvalir aðeins verið álitnar ein-
kenni á veikindum sem læknirinn
greinir og síðan meðhöndlar. Ölækn-
andi kvalir eru nú á dögum líka
álitnar sjúkdómur út af fyrir sig.
Meira en 100 kvaladeildir eru nú
á sjúkrahúsum um allt Bret-
land, og eftir því sem læknar skilja
líkamsstarfsemina sem við kemur
kvölum betur, þróa þeir nýja tækni
til að lina þær.
Kvalir eru sennilega algengustu
sjúkdómseinkennin sem orsaka það
að við leitum læknis, og við eigum
meira en 100 lýsingarorð til að lýsa
sársaukanum. En hvað eru þærí raun
og veru? ,,Við vitum að kvalir eru
undirstaða þess að líkamsstarfsemin
varar okkur við skemmdum á líkama
okkar,” útskýrir dr. Samson Lipton,
leiðtogi og brautryðjandi í rannsókn-
um á kvölum á Walton sjúkrahúsinu í
Liverpool. „Venjulega getum við
fundið upptökin og meðhöndlað
þau. En í vissum tilfellum, svo sem
liðagigt, er engin meðhöndlun til og
sjúkdómseinkennin eru miklu erfið-
ari en orsökin.”
Þegar læknar geta ekki linað kvalir
í neðri hluta baks, eða í liðamótum,
eða þær kvalir sem fólk fær 1 limi sem
teknir hafa verið af, hafa þeir oft ráð-
lagt sjúklingum sínum að ,,reyna að
venjast þeim”. Hjá þeim sem kval-
irnar höfðu enga augljósa líffæralega
orsök gat verið sagt að þeir hefðu þær
,,á sálinni” — þrátt fyrir þá stað-
reynd að sálfræðilegar kvalir eru alveg
jafn sársaukafullar. ,,Við viðurkenn-
um núna,” segir dr. Lipton, ,,að
afarmiklar kvalir eru algjörlega
ónauðsynlegar. ”
A læknastofum eru sennilega níu
af hverjum tíu sjúklingum með
ólæknandi kvalir meðhöndlaðn með
lyfjum. Þeim er ráðlagt að taka lyf
,,eftir klukkunni” — á tilteknum
tímum, hvort sem þeir þjást eða ekki.
Þeir sem starfa að læknarannsóknum
hafa uppgötvað að sársaukinn sjálfur,
eða óttinn við að hann komi aftur,
minnkarí raun þolið gegn honum. Ef
sjúklingur getur verið viss um að
hann muni ekki þjást, er líklegt að
hann finni til minni kvala og þarfnist
þess vegna að iokum m'inna af deyf-
andi lyfjum.
Þegar rannsóknir á kvalastillum
hafa þróast, er hægt að gera vissar
meðhöndlanir sjálfvirkari. Eftirtekt-
arverð tölvustýrð kvaladrepandi vél,
framleidd á Royal Victoria sjúkrahús-
inu í Newcastle upon Tyne’s, og
núna líka á tilraun á Almennings-
sjúkrahúsinu í Southampton, er
tengd við sjúklinga sem fá blóðgjöf í
æð. Iitill sjónvarpsskermur á vélinni
við hliðina setur fram spurningu með
reglulegu millibili: „Líðurðu
kvalir?” Ef sjúklingurinn ýtir á ,Já”