Þroskaþjálfinn - 1998, Page 14
N ý lög um Kennaraháskóla ís-
lands tóku gildi 23. desember 1997.
Með tilkomu þeirra var formlega
gengið frá sameiningu Þroska-
þjálfaskóla Islands, Fóstur-
skóla Islands, Iþróttakennara-
skóla íslands og Kennarahá-
skóla Islands og nýr háskóli,
Kennaraháskóli Islands stofn-
aður.
Um hlutverk hins nýja háskóla
segir í 1. grein hinna nýju
laga: „Kennaraháskóla Islands
er miðstöð kennara- og upp-
eldismenntunar á Islandi.
Kennaraháskóli íslands er vís-
indaleg fræðslu- og rannsóknarstofn-
un er veitir nemendum sínum mennt-
un til þess að gegna störfum á sviði
kennslu, þjálfunar, uppeldis og um-
önnunar og til þess að sinna sjálfstætt
fræðilegum rannsóknum á því sviði.“
Þó að formlega sé búið að ganga frá
stofnun hins nýja háskóla er margt ó-
gert og mikil vinna framundan hjá
starfsmönnum hinnar nýju háskóla-
stofnunar við að móra og skipuleggja.
Það eru einnig eflaust margar spurn-
ingar sem vakna hjá þroskaþjálfum og
þeir vilja fá svör við. Hvaða fram-
haldsnám verður í boði fyrir þroska-
þjálfa? Hvernig verður sí- og endur-
menntun háttað? Verður tekið nægj-
anlegt tillit til sérþarfa okkar?
Hvernig verður ,,gamla“ prófið mitt
metið? Er mikilvægt að afla sér þess-
arar B.ed. gráðu? Hvað þarf ég að
bæta miklu við mig?
Hvað varðar framhalds- og endur-
menntun þá er mikil vinna í gangi
innan hins nýja háskóla við að endur-
skipuleggja og byggja upp starfsemi á
þessu sviði. Hvort fullt tillit verði
tekið til sérþarfa þroskaþjálfa á eftir að
koma í ljós. Það er hins vegar afar
mikilvægt að við fylgjumst vel með
gangi mála og látum í okkur heyra á
meðan þetta mótunarstarf fer fram því
það hlýtur alltaf að vera okkar hlut-
verk að standa vörð um
menntun okkar. Það gerir
enginn annar fyrir okkur.
Allir þroskaþjálfar eiga rétt á
að fara í framhaldsnám í hin-
um nýja háskóla og gildir þá
einu hvenær viðkomandi út-
skifaðist. Það er síðan undir
hverjum og einum komið
hvort B.ed. gráða sé mikil-
væg. Fyrir þroskaþjálfa sem
hyggja á framhaldsnám er-
lendis getur það verið nauð-
synlegt.
Flutningur þroskaþjálfanámsins upp á
hálskólastig er tvímælalaust mikil-
vægur áfangi fyrir þroskaþjálfa. Með
því opnast fjöldi leiða til að efla fag-
legar framfarir bæði á sviði hagnýtrar
þroskaþjálfunar sem og á sviði rann-
sókna. Auk þess hlýtur þessi breyting
að styrkja baráttu stéttarinnar fyrir
bættum kjörum.
Salóme Þórisdóttir
forst'óÓuþroskaþjdlfi
V 1
Salóme Þórisdóttir,
forstöÓuþroskaþjálfi
14