Þroskaþjálfinn - 1998, Blaðsíða 21

Þroskaþjálfinn - 1998, Blaðsíða 21
Flutningfur laflokks ma fatlaðra f ra riRi ki til sveitarfélacfa Úrdráttur úr erindi sem flutt var á starfsdögum })roska})jálfa íker 1997 i novemi s I lok ársins 1996 voru staðfest lög á Alþingi þess efnis að stefnt skuli að því að málefni fatlaðra verði flutt til sveitarfélaga hinn 1. janúar 1999 að uppfylltum tilteknum skil- yrðum. Tilskilið var að sam- þykktar verði breytingar á lögum um tekjustofn sveitar- félaga, breytingar á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga þar sem málefni fatlaðra eiga að falla undir þá löggjöf og sérstök lög um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Til und- irbúnings þessum verkefna- flutningi var ákveðið að fé- lagsmálaráðherra skipaði verk- efnisstjórn. Verkefnisstjórn hefur yfir- umsjón með verkefninu, hún fjallar um hugsanleg ágreiningsmál sem upp kunna að koma og leysir úr þeim. Hún samræmir störf nefnda og hefur með höndum lokagerð samninga milli ríkis og sveitarfélaga. Undirnefndir verkefnisstjórnar eru laganefnd og kostnaðarnefnd, en undir henni er hópur sem fjallar um starfsmannamál, auk þess hefur verið skipaður svo kall- aður úttektarhópur. Laganefnd er ætlað að semja ný lög um félagsþjónustu sveitarfélaga sem taka til þeirrar þjónustu sem veitt er samkvæmt gildandi lögum um mál- efni fatlaðra. Samhliða því þarf nefnd- in að semja ný lög um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og huga að því hvernig réttindagæslu fatlaðra verði best háttað. Gert er ráð fyrir að starfs- hópur eða hópar starfi á vegum nefnd- arinnar að einstaka verkefnum. Kostnaðarnefnd er ætlað að meta fjár- hagsleg áhrif yfirtöku sveitarfélaga á þjónustu við fatlaða og gera tillögur um hvernig sveitarfélögum verði bætt þau útgjöld. Sérstakri undirnefnd kostnaðarnefndar þ.e. nefnd um starfsmannamál er ætlað að fjalla um réttindi starfsmanna sem vinna að málefnum fatl- aðra við yfirtöku sveitarfélaga á þjónustunni. Uttektarhópur hefur það hlutverk að safna upplýsing- um um fjölda fatlaðra í land- inu sem skráðir eru hjá svæð- isskrifstofum, þjónustu þeirra og þarfir fyrir þjónustu. Einnig að yfirfara biðlista svæðisskrifstofa og upplýsa um þjónustuþörf þeirra einstaklinga sem eru á þeim. Hópurinn hefur sent svæðisskrifstofum erindi vegna út- tektar á framangreindum þáttum þar sem vinna á ítarlegar upplýsingar út frá ákveðnum flokkum til að gefa sem skýrasta mynd af stöðunni á hverju svæði fyrir sig. Auk þess eru landshlutanefndir í 21

x

Þroskaþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.