Þroskaþjálfinn - 1998, Page 22

Þroskaþjálfinn - 1998, Page 22
hverju kjördæmi fyrir sig. Lands- hlutanefndir hafa það hlutverk að undirbúa eða aðstoða einstök sveitar- félög við yfirtöku þeirra á þjónustu við fatlaða. í umræðum að undanförnu hefur nokkuð borið á ótta manna við skamman undirbúningstíma vegna flutningsins þar sem vinnuferlið sé flókið og taki langan tíma. Benda margir á reynsluna af flutningi á rekstri grunnskólans til sveitarfélag- anna þar sem nokkuð virðist skorta á að framlög ríkisins dugi, en ljóst er að margt má læra af framkvæmdinni við þann flutning. I allri þessari umræðu um yfirfærslu málaflokksins hefur oft verið vitnað til reynslu Norðmanna. Þar í landi var lögð upp áætlun til 10 ára um að leggja niður allar altækar stofnanir í landinu, en áður var búið að fella aðra þjónustu við fatlaða inn í félagsmála- löggjöfina. Þessi áætlun um að loka þessum stóru stofnunum var lögð upp sameiginlega af ríkisstjórn og NFPU, sem eru hags- munasamtök fatlaðra. Norska ríkið lagði mikla fjármuni í áætlunina þannig að allir gætu flutt frá stofnun- um á þessu 10 ára tímabili. Mikil áhersla var lögð á uppbyggingu búsetuúrræða sem tókst mjög vel, en töluvert skortir enn á að úrræði í dag- þjónustu séu nægjanleg til að mæta þörfum þessa hóps. Sama gildir um félagslega þjónustu eins og liðveislu. Ef við horfum aftur til stöðunnar í dag er vert að skoða hvern- ig þjónustunni er háttað hjá okkur. Eins og vitað er þá eru reynslusveitarfé- lögin orðin fjögur en fyrst þeirra var Ak- ureyrarbær (1996), en Húsavíkurbær, Hornafjarðarbær og Vestmannaeyjarbær bættust í hópinn í byrjun árs 1997. Samningur við þessi sveitarfélög gild- ir til ársins 2000. Sveitarfélögin skila skýrslu um starfsemi hvers liðins árs auk ársreiknings sveitarfélagsins með- an á tilraunaverkefninu stendur en í lok þess mun óháður aðili gera úttekt á tilrauninni. Skipulag og þjónusta Félagsmála- stofnana er með töluvert öðrum hætti en skipulag við þjónustu málefna fatl- aðra. Því er ljóst að flutningurinn mun kalla á nýja nálgun í þjónustu Félagsmálastofnana. Erfitt er að átta sig á hvernig þjónustan kemur til með að líta út þar sem lagasetningin er ekki til staðar enn þá. Þar sem þetta er nýr málaflokkur hjá sveitarfélögunum er mikilvægt að fagfólk með þekk- ingu á þessu sviði verði með í upp- byggingunni frá byrjun. Þroskaþjálfar eiga að gera sig gildandi innan félagslegrar þjónustu framtíðar- innar á öllum stigum hennar þ.e. við þjálf- un, uppeldi og um- önnun fatlaðra sem og í skipulagningu og stjórnun þjón- ustunnar. Þroskaþjálfun og þau vinnutæki sem þroskaþjálfar hafa til- einkað sér í námi sínu og starfi, sér- þekking þeirra á stöðu fatlaðra þá sér- staklega þroskaheftra og heildarsýn á þörfum þeirra er mikilvægur hlekkur í þverfaglegu starfi framtíðarinnar. Hrönn Kristjánsdóttir forstöðuþroskaþjálfi Þrosl?a|jjálíar e'i g’a að g’era si^ g’ildantli i mnan íélagfslegfrar þjónustu framtíáarinnar á öllum stig’u m kennar... Eftirtaldir aðilar styrktu útgáfu blaðsins: Gallery Kjöt Grensásvegur 48, 108 Reykjavík Bæjarskrifstofurnar Stillholt 16, 300 Akranes Gámaþjónusta Akraness hf Háholti 32, 300 Akranes Ecoline ehf Sunnumörk 4, 810 Hveragerði Geiri Péturs ehf Uppsalavegi 22, 640 Húsavík Efnalaug og Þvottahús Sauðárkróki Aðalgötu 14, 550 Sauðárkrókur Eignamiðlunin ehf SÍÐUMÚLA 21, 108 ReYKJAVÍK Húsavíkurkaupstaður Ketilsbraut 9, 640 Húsavík Ektafiskur ÁSHOLT 3, 621 DALVÍK Dalvíkurbær Ráðhús, 620 Dalvík E T ehf Klettagarðar ii, 104 Reykjavík Dalvíkur Apótek Goðabraut 4, 620 Dalvík Efnalaugin Glæsir Bæjarhrauni 4, 220 Hafnarfjörður Gistiheimilið Syðra Langholti Syðra-Langholti 3, 845 Flúðir 22 Þroskaþjálfafélag í s I a n d s

x

Þroskaþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.