Þroskaþjálfinn - 1998, Síða 24

Þroskaþjálfinn - 1998, Síða 24
18. Maí 1965 Þær sem útskrifuðust sem gæslusystur á árunum 1960-65 sáu það fljótt að mikilvægt væri að stofna félag sem gætti hagsmuna þeirra. 18. maí 1965 var stofnfundur félags þroskaþjálfa í stofunni heima hjá Kristjönu. Fund- urinn var svona eins og meðal sauma- klúbbur en stofnfélagar voru líklega um tuttugu. Mjög áberandi var hversu mikil samstaða var í hópnum en það kom líklega til vegna þess að þær höfðu allar lært á “hælinu”. Fólk lagði á sig mikla vinnu við að byggja upp félagið, að öðrum ólöstuðum lagði Helga Birna Gunnarsdóttir á sig mikla forvinnu í fyrstu reglugerð um störf þroskaþjálfa. Stéttarfélag nú Á síðasta ári var stofnað stéttarfélag þroskaþjálfa og fannst Kristjönu það orðið vel tímabært. Hún var mjög á- nægð með samstöðu sem hún upplifði meðal félaga sinna, það þurfti mikinn kjark til að stíga þetta skref. Hennar álit er að þroskaþjálfar þurfi sífellt að vera að endurmeta störf sín. Stéttin þarf að vera sveigjanleg þar sem hún starfar með mörgum ólíkum faghópum. Viðurkenning I desember síðastliðnum hlaut Krist- jana viðurkenningu fyrir störf sín á Endurhæfingar- og hæfingardeild Landsspítalans í Kópavogi. Þar hefur hún starfað mestan hluta starfsævi sinnar, tekið þátt í uppbyggingu stað- arins og tekur nú þátt í að leggja hann niður. Viðurkenningin vakti með henni blendnar tilfinningar, þar sem hún hefur séð marga vinna góð störf í gegnum tíðina án viðurkenningar. Hins vegar fannst henni það ánægju- legt fyrir stéttina að þroskaþjálfi fengi þessa viðurkenningu. Þannig fannst henni viðurkenningin meira vera til stéttarinnar sem heildar frekar en hennar sem einstaklings. Félagið og líf Kristjönu Svo samtvinnað virðist einkalíf Krist- jönu starfsemi Félags þroskaþjálfa að merkisatburðina stofnun félagsins og fyrstu barnsfæðingu hennar bar uppá árið 1965. Sama ár og félagsmenn Þroskaþjálfafélagsins stofnuðu stéttar- félag sitt, sem var árið 1997, þá eign- aðist Kristjana fyrsta barnabarn sitt. Allt eru þetta því börnin hennar hvað á sína vísu. Fortíðin / Framtíðin Að mati Kristjönu þá byggist fram- tíðin á fortíðinni. Sagan er ekki fögur en við verðum að hafa hana okkur til varnaðar. Hún telur að þroskaþjálfa- stéttin hafi átt mikinn þátt í þeim breytingum sem orðið hafa á högum og kjörum fatlaðra. Framtíð stéttarinnar er óráðin en engu að síður metur Kristjana það svo að mikilvægt sé, að áfram sé til stétt sem standi vörð um hagsmuni fatlaðra. Ef ekki hefði verið heil stétt sem barðist á sínum tíma fyrir málefnum fatlaðra þá hefði útkoman ekki verið sú sem hún er í dag. En þroskaþjálfar mega ekki gleyma sjálfum sér, þeir verða að berjast fyrir bættum kjörum sínum því öðruvísi öðlast þeir ekki virðingu sem fagstétt. Eðlilegt er að upp komi efasemdir um það, hvort rétt sé að farið við ákvarð- anatökur varðandi stefnumótun og rétt að endurskoða aðferðir og breyta leiðum. Framtíð stéttarinnar byggist á sveigjanleika þar sem við nýtum okkur fortíðina og reynslu hennar. Þegar Kristjana lítur til baka yfir starfsferil sinn þá sér hún ekki eftir þvx að hafa valið sér þetta starf á sín- um tíma. Henni hefur aldrei leiðst í vinnunni og alltaf hlakkað til að koma til starfa eftir frí. Sem lokaorð vill Kristjana segja þetta: “Fagmennska er af hinu góða en mest er um vert að kynnast einstaklingnum og vinna traust hans. Þá fyrst er hægt að vinna gott starf.” Sigrún Broddadóttir þroskaþjálfi. U nnur Fr. Halldórsdóttir þroskaþjálfi. Eftirtaldir aðilar styrktu útgáfu blaðsins: Gistiheimiu Ólafsvíkur Ólafsbraut 19, 355 Ólafsvík Ljósvakinn Síðumúli 15, 108 Reykjavík Gerðahreppur Melbraut 3, 250 Garður Bílatorg hf Funahöfði I, 112 Reykjavík Gistihús Dúnu fif SUÐURHLÍÐ 35D,I05 REyKJAVÍK H Hauksson hf SUÐURLANDSBRAUT 48, I08 REYKJAVÍK Gesthús Selfossi Austurvegur 46, 800 Selfoss Haraldur Böðvarsson hf Bárugata 8-10, 300 Akranes Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar SÍÐUMÚLI 39,2.HÆÐ, Io8 REYKJAVÍK ÍSBÚÐIN ÁLFHEIMUM 4 Álfheimar 2, 104 Reykjavík Lundarreykjadalshreppur Brennu, 311 Borgarnes Flúðasveppir Undirheimaii, 845 Flúðir Þroskaþjálfafólag íslands

x

Þroskaþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.