Þroskaþjálfinn - 1998, Síða 32

Þroskaþjálfinn - 1998, Síða 32
„gömlu deildina mína“ og gat nýtt megnið úr henni fyrir nýju deildina. Aðaláherslurnar í heildaráætluninni eru; að vera sjálfstæður og virtur, á- hugamál og óskir, einkalíf, viðhorf, boðskipti og aðstandendur. Áætlun þessi mun að sjálfsögðu breyt- ast eftir þörfum íbúa deildarinnar hverju sinni. Varðandi húsnæði deildarinnar, þá er það helst að segja að því var breytt heilmikið sumarið 1996. Það var t.d. fengin ný eldhúsinnrérting, herbergi voru stækkuð og eitt stórt baðher- bergi gert að tveimur minni. 18. nóvember 1996 fluttu sem sagt 7 íbúar inn á nýju öldrunardeildina. Á deildinni er gert ráð fyrir átta íbúum. Málið var hins vegar það að flutningi eins af fyrri íbúum deildarinnar út á sambýli seinkaði vegna óviðráðan- legra ástæðna, þegar sá einstaklingur flutti kom síðan aldraður íbúi inn og er því deildin fullskipuð. Flutningarnir gengu fljótt og vel fyrir sig. Aðlögun fyrir flutningana hafði verið mismikil - eftir einstaklingum. Nokkrir höfðu fengið að fylgjast með framkvæmdunum og verið sýndar væntanlegar vistarverur. Aðlögun eft- ir flutningana gekk furðu vel. Hafa ber í huga að fbúarnir jafnt og starfs- menn þurftu að kynnast innbyrðis fyr- ir utan að kynnast nýju umhverfi og venjum. Einn fbúi var þó hátt í mán- uð að jafna sig. Ástæðuna tel ég eink- um vera þá að þessi einstaklingur hef- ur að öllum líkindum aldrei búið í jafn áreitislausu umhverfi og nú. Einn starfsmaður hætti skömmu eftir áramót og bar því helst við að hann fyndi fyrir einangrun - í starfi - sér í lagi á kvöldin og um helgar. Á deildinni eru níu stöðugildi sem skiptast á tólf starfsmenn, þar af er deildarstjóri, sem er þroskaþjálfi í 80%, næturvakt í 70% og ræsting í 50%. Fyrir utan deildarstjórann og einn sjúkraliða, þá er deildin mönnuð ófaglærðu starfsfólki. Vaktirnar skiptast þannig að það eru þrír á dag- vakt nema um helgar og á helgidögum, þá eru tveir. Einn á 14:00-22:00 og einn á 15:30-23:30. ...hafái ég' mjög' fastar shoáanir á ]tví hvernigf ég vilcli ehhi hafa starfsemi deilclar- við ADL. Einn er í hjólastól og þrír nota hjólastól utan dyra. Um helgar er oft farið í bíltúra og kaffihús. Sl. sumar voru Húsdýragarðurinn og Tjörnin í Reykjavík vinsælir við- komustaðir, einnig var dvalið f Daða- húsi á Flúðum í eina viku og síðast en ekki síst, þá er oft farið í gönguferðir um nágrennið. Vegna þess að Land- spítalinn í Kópavogi er hluti af Ríkisspít- ölum, þá fáum við alltaf aðsendan heitan mat í hádegi og að sama skapi þá er allt lín fyrir utan persónulegan fatnað þvegið á Þvottahúsi Ríkisspít- ala. Um miðjan október sl. áttuðum við starfsfólkið okkur á því að nær því ár væri liðið frá opnun deildarinnar - í til- efni þess langaði okkur til að gera smá dagamun. Að- standendum íbúanna var því boðið í „kleinukaffi" 18. nóvember. Það komu 11 gestir sem fengu sér með okkur kaffi, kleinur og heimabakaðar vöfflur - og nutu allir samverunnar. Deildarfundir eru haldnir 1-2 í mán- uði eftir þörfum og er þá tímanum skipt í fræðslu og „praktísk" mál. Starfsmenn hafa aðgang að fræðslu- möppu sem kemur til með að breytast - efnislega - eins og heildaráætlunin. í fræðslumöppunni er m.a. efni um; öldrun, gildi hreyfingar, mataræði, Down’s heilkenni, Alzheimer, blindu, heyrnaleysi og kulnun í starfi. Þessi mappa var upphaflega samstarfsverk- efni í framhaldsnámi ÞSÍ. Vegna aldurs íbúanna - 66 ára til 86 ára - þá er engin skipulögð þjálfun í gangi heldur er lögð áhersla á hreyf- ingu eins og sjúkraþjálfun og sund. Oldrunarafþreyingu sækja síðan 3 einstaklingar innan staðarins. Sjö af átta íbúanna þurfa alla aðstoð Nú er öldrunardeild Landspítalans í Kópavogi sem sagt á öðru ári starf- semi sinnar. Eðli deildarinnar sam- kvæmt, þá mun hún taka örari breyt- ingum en almennt gerist og ekki síst vegna þess þá gerum við okkar ítrasta til þess að allir íbúarnir geti notið líð- andi stundar á eigin forsenclum. I lokin þá vil ég segja að fyrsta ár öldr- unardeildarinnar gekk mun betur en ég hafði gert ráð fyrir og að öll starfs- mannafræðsla skilar sér margfalt í við- horfum og betri umönnun íbúanna. Kœrar kveðjur, Vera Snxhólm yfirþroskaþjálfi Landspítalanum í Kópavogi Eftirtaldir aðilar styrktu útgáfu blaðsins: Öryrkjabandalag Íslands Hátún io, 105 Reykjavík Verslunin Varmilækur Varmalæk I, 560 Varmá Þórshafnarhreppur Langanesvegur 16 -A, 680 Þórshöfn Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Kringlan 7, 103 Reykjavík Þroskahjálp á Suðurnesjum SUÐURVELLIR 7-9, 23O KEFLAVÍK Vestmannaeyjabær Kirkjuvegur 50, 900 Vestmannaeyjaii 32 Prosknþjálfafélag í s I a n d s

x

Þroskaþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.