Þroskaþjálfinn - 1998, Síða 34

Þroskaþjálfinn - 1998, Síða 34
Þro ska J) j álfi í ra íðg’jöf S a svæáisskrifstofu a landsby cf g’ ái mni C tarf þroskaþjálfa sem vinnur við ráðgjöf, skipulagningu og uppbygg- ingu þjónustu fyrir fatlaða í dreifðri byggð er býsna frábrugðið þeim þroskaþjálfastörfum sem flest- ir þekkja. í þessari grein ætla ég að reyna að varpa svolitlu ljósi á starf ráðgjafa í málefnum barna hjá Svæðisskrifstofu Austurlands. Þess ber að geta að á flestum Svæðisskrifstof- um eru sambærileg störf, ýmist í málefnum barna eða fullorðinna en eru þó mjög ólík. Starfsvettvangurinn en lítt afmarkaður og ræðst af stærð og landfræðilegri stöðu svæðisins, fólks- fjölda, annarri þjónustu, fjölda og fjölbreytileika fagfólks á svæðinu og ekki síst þeim einstaklingum sem þarfnast þjónustu, fötlun þeirra og sérkennum. Þetta gerir starfið einnig breytilegt frá einum tfma til annars á sama svæði. Svæðið er stórt... Svæðið sem heyrir undir Svæðisskrif- stofu Austurlands nær frá Bakkafirði í norðri til Breiðdals í suðri. Sveitarfé- lögin eru í dag 22 en verða 14 að loknum sveitarstjórnarkosningum í vor. Flest eru þessi sveitarfélög mjög fámenn og þar er lítið um fagmenn á sviði fatlana. Félagsþjónustan er í flestum sveitarfé- lögunum skammt á veg komin. Þessi staða gerir starf ráðgjafa í málefnum fatlaðra mikilvægari en ella, því oft er ekki öðrum til að dreifa sem hafa fag- þekkingu til að koma á fót þjónustu fyrir fatlað barn, veita ráðgjöf og fylgja henni eftir. ...og byggðin dreifð Börn með fötlun búa vítt og breitt um svæðið og eitt af því sem gerir starf ráðgjafa hér mjög sérstakt er að síminn verður lykilatriði í allri ráð- gjöf. Auðvitað er síminn ekki ákjós- anlegasti samskiptamátinn, nauðsyn- legt er að hitta fólkið líka en þá þarf að setjast undir stýri og fara á staðinn og er í flestum tilfellum yfir a.m.k. einn fjallveg að fara. Fötlun barnanna er mjög ólík þannig að oft er lítið hægt að nýta af reynslu sem fengin er í einu máli í þvx næsta. Þegar barn greinist með fötlun þarf því að afla upplýsinga um fötlun og meðferð og setja af stað við- eigandi þjónustu, fylgja málinu eftir og aðstoða við að leita nýrra leiða þegar við á. Ýmsar lausnir finnast á heimavelli Samkvæmt lögum skal hver einstak- lingur njóta allrar almennrar þjónustu ríkis og sveitarfélaga, aðeins þegar sú þjónusta nægir ekki skal veita þjón- ustu samkvæmt lögum um málefni fatlaðra. Það er einmitt þarna sem meginhluti vinnunnar liggur. Finna þarf leiðir innan almenna kerfisins, laga þær að þörfum hins fatlaða og fjölskyldu hans, semja við ýmsa aðila innan almenna kerfisins um þjónustu og samstarf. Þarna þarf að gæta vel að 34

x

Þroskaþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.