Þroskaþjálfinn - 1998, Síða 35

Þroskaþjálfinn - 1998, Síða 35
sveigjanleika, þannig að úrræðið sem skipulagt er þjóni þörfum hins fatlaða en ekki öfugt og vinna þarf með við- horf þeirra sem þjónustuna veita og annarra sem þar koma að. Viðhorfin skipta gífurlega miklu máli. Hafi viðkomandi trú á að unnt sé að leysa verkefnið er hann líklegri en ella til að vinna að því af heil- um hug og leita lausna, finna leiðir til að yfirstíga þær hindranir sem á vegi verða. Skoða þarf kosti og galla Foreldrar þurfa mikinn stuðning þeg- ar unnið er eftir óhefðbundnum leið- um. Þeir fá oft þau skilaboð að þeir séu að svifta barnið nauðsynlegri þjónustu með því að halda við þá á- kvörðun að búa úti á landi. Þeir verða iðulega fyrir þrýstingi með að flytja suður „þar sem öll þjónustan er.“ Þetta setur foreldra oft í vanda. Ann- ars vegar er samviskubitið yfir að vera hugsanlega ekki að gera það besta fyr- ir barnið sitt, og hins vegar hin börn- in, atvinnan, eignir, fjölskyldan, vinir og allt hitt sem hefur gert það að verkum að þessi búseta hefur verið valin. Þarna kemur til kasta ráð- gjafans að aðstoða foreldrana við að skoða þá valmöguleika sem fyrir hendi eru og meta kosti þeirra og galla. Síðan þarf ráðgjafinn að styðja fólk og styrkja í þeirri ákvörðun sem það tekur. Það gerist oft að litið er fyrst á gallana við að veita þjónustu í litlum sveitar- félögum og horft á það sem ekki fæst. Sértæk þjónusta er lítil sem þýðir að mest er byggt á þjónustu innan al- menna kerfisins. Lítil sveitarfélög hafa á mörgum sviðum ótvíræða kosti þeg- ar veita á einstaklingum þjónustu. Sveigjanleikinn verður meiri, það er auðveldara að vinna út frá sérstökum þörfum þess einstaklings sem á að fá þjónustuna. Samfélagslegur stuðning- ur er einnig meiri á stað þar sem allir þekkja alla. Utsjónarsemi og opinnar hugsunar er þörf því margar þær leiðir sem við för- um til að laga almenna kerfið að þörf- um hins fatlaða eru óhefðbundnar og hafa aldrei verið farnar áður. Hug- myndirnar mæta því oft mótstöðu og vekja ótta hjá bæði aðstandendum og þjónustuaðilum, oft hafa þau ekki trú á að dæmið gangi upp. Fólk er vant umræðu á þann veg að sérstofnanir fyrir fatlaða séu það eina rétta og að aðrar lausnir séu til bráða- birgða og annars flokks. Einnig verð ég mjög vör við þá skoðun að þjónusta við fólk með fötlun sé svo flókin og frábrugðin þjónustu við annað fólk að þeim verði einungis sinnt af sérfræð- ingum á Reykjavíkursvæðinu. Það kostar því oft mikla vinnu að fá fólk til að skoða og meta þær lausnir sem til eru, eða hægt að búa til heima fyr- ir. Reynslan hefur sýnt að þessar lausnir eru oft ekki síðri fyrir einstak- linginn þar sem nálægðin og sveigjan- leikinn vega þungt í þjónustunni. Hvar stöndum við? Þegar ég hóf störf á ráðgjafardeild Svæð- isskrifstofu Austtir- lands sumarið 1994 vissi ég ekki mikið um starfið, jú ég átti að vera forstöðu- maður leikfangasafns og sjá um um- önnunarbætur, ráðgjöf til foreldra og þjónustuaðila, uppbyggingu og skipulagningu þjónustu við fötluð börn á svæðinu frá Bakkafirði til Breiðdalsvíkur í samráði við foreldra og sveitarfélög. Eg hef komist að raun um hversu ó- sýnilegt starf ráðgjafa er og að það er erfitt að segja hvað í því felst. Skýring- in á því að ráðgjöf og aðstoð við skipu- lagningu þjónustu er ekki talin sterkari í umræðunni er ef til vill sú að þessi störf eru lítt sýnileg og illmælanleg, miðað við það að geta talið íbúa/þjón- ustuþega og starfsmenn og skoðað um- fang bókhalds og metið út frá því. Nú í nýafstaðinni kjarabaráttu hafa komið fram vangaveltur um störf þroskaþjálfans og menntun, erum við nauðsynleg eða ekki. Ef ég skoða stöð- una í dag á Austurlandi þá er stað- reyndin sú að skilningur á sérstökum þörfum fatlaðra innan almennrar þjónustu er oft af skornum skammti. Það er í mínum huga ljóst að þörf er á öflugri ráðgjafarþjónustu bæði til fatl- aðra og fjölskyldna þeirra og einnig til hinna sem eiga að skipuleggja, byggja upp og veita þjónustu, ekki síst þegar málaflokkur fatlaðra verður fluttur frá ríki tii sveitarfélaga. Þar sem menntun þroskaþjálfans ligg- ur á því sviði að skipuleggja heild- stæða áætlun fyrir einstaklinginn og horfa á þarfir hans og væntingar, á- samt þvx að hafa grunnþekkingu á ýmsum sviðum uppeldis og þjónustu tel ég að hann sé vel til þess fallinn að sinna svona ráðgjöf. Það er stefnan að allir þyggi þjónustu á sömu stöðum, fatlaðir sem ófatlaðir, og hinar ýmsu starfsstéttir sem sinna þjónustu við fólk verða þá að víkka út sína þekkingu og taka á málefnum fatlaðra að fullu. I framtíðinni sjáum við fyrir okkur að ekki verði þörf fyrir þroskaþjálfa í mál- um barna og ung- linga, á skólaaldri, það eru hópar sem fá mjög afmarkaða þjónustu, og hægt að víkka iit nám leik-, grunn- og fram- haldsskólakennara til að sinna þeim. Þá stendtir eftir allur sá hópur sem kemur til með að þurfa sérstaka aðstoð og stuðning á heimilum sínum, á vinnustöðum og í tómstundum. Eng- in fagstétt önnur en þroskaþjálfar hef- ur menntun í að styðja þroskaheft fólk til sjálfstæðis í daglegu lífi á þessum sviðum. Ég held að það muni alltaf þurfa að horfa á mál hvers einstaklings, þjón- usta við fólk með fötlun verður aldrei skipulögð í eitt skipti fyrir öll. Það er trú mín að allavega langt fram á næstu öld verði að vera til stétt fólks sem hefur sérþekkingu á málefnum fatlaðra og uppbyggingu þjónustu við þá í hinu almenna kerfi og í daglegu lífi. Þórhildur Kristjánsdóttir forstöðuþroskaþjálfi Börn meá fötlun Lúa vítt og’ Lreitt um svæðið Fólk er vant umræáu á |iann veg aá sérstofn- anir fyrir fatlaáa séu |jaá eina rétta 35 Þroskaþjálfafélag í s I a n d s

x

Þroskaþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.