Skemmtisögur - 15.04.1953, Side 17

Skemmtisögur - 15.04.1953, Side 17
ar héldu áfram, og til þess að álögurnar yrðu greiddar, þá var konum og börnum haldið í gísling og meðhöndluð á þann dýrslega hátt, sem aðeins loðskinnaþjófun- um var eiginlegur. Jæja, þetta hafði verið sáning blóðs, og nú var uppskerutíminn kominn. Virkið var horfið. Við bjarmann af eldhafi þess hafði helftin af loðskinnaþjófunum verið brytjuð niður. Hin helftin hafði kvatt þennan heim undir ofurþunga pyntinganna. Subienkov var einn eftir, eða Subienkov og Stóri Jón, ef þetta volandi og kveinandi flykki þarna í snjónum gat kallast Stóri Jón. Subienkov sá, að Yakaga glotti til sín. Það var þýðing- arlaust að reyna að sefa Yakaga. Örin eftir hnútasvipuna voru enn á andliti hans. Su- bienkov gat ekki áfellzt hann, þegar öllu var á botninn hvolft, en um hann fór hroll- ur, þegar honum varð hugsað til þess hvernig Yakaga myndi fara með sig. Hon- um datt í hug að leita ásjár Makamuks, ættarhöfðingjans; en dómgreind hans sagði honurn, að slíkt væri þýðingarlaust. Því næst datt honum í hug að svipta af sér fjötrunum og deyja í bardaga. Slíkt myndi orsaka skjótan dauðdaga. En hann gat ekki svipt fjötrunum af sér. Ólar úr hreindýra- skinni voru sterkari en hann. En þar sem hann ennþá var úrræðagóður, þá kom hon- um annað ráð í hug. Hann gerði boð eftir Makamuk og bað um að láta sækja túlk, er skildi mállýzku strandbyggjanna. „Æ, Makamuk", sagði hann, „ég vil ekki deyja. Ég er mikill rnaður og það væri flónska af mér að deyja. í sannleika sagt, ég mun ekki deyja. Ég er ekki eins og þetta hræ“. Hann leit á stynjandi flykkið, sem einu sinni hafði verið Stóri Jón, og ýtti fyrirlit- lega við því með fætinum. „Ég er of vitur til þess að deyja. Sjáðu til, ég á töfralyf. Ég einn þekki þetta lyf. Þar sem ég ætla ekki að deyja, þá skal ég SKEMMTISÖGUR láta þér þetta lyf í té". „Hvers konar lyf er það?“ spurði Maka- muk hranalega. „Það er furðulegt lyf“. Subienkov hugsaði sig um stundarkorn, eins og honum væri um og ó að kunngera leyndarmál sitt. „Ég skal segja þér það. Ef dálítil ögn af þessu lyfi er borin á hörundið, þá verður það liart eins og klettur, hart eins og járn, svo að ekkert eggvopn fær á því unnið. Hið þyngsta högg eggvopnsins verður með öllu áhrifalaust gegn því. Beinhnífur verður eins og mykja: og það mun slæva eggjar járnhnífanna, sem við höfum fært ykkur. Hvað viltu láta mig fá fyrir leyndarmálið um lyfið?“ „Ég skal gefa þér líf“, svaraði Makamuk fyrir milligöngu túlksins. Subienkov hló með fyrirlitningu. „Og þú skalt verða þræll minn þangað til þú deyrð“. Pólverjinn hló með ennþá meiri fyrir- litningu. „Leysið hendur mínar og fætur og við skulum ræðast við“, sagði hann. Ættarhöfðinginn gaf merkið, og þegar Subienkov var orðinn laus, vafð.i hann sér sígarettu og kveikti í henni. „Þetta er þvættingur“, sagði Makamuk. „Það er ekki til neitt slíkt lyf. Það gæti ekki átt sér stað. Bitjárn er sérhverju lyfi yfirst«rkara“. Ættarhöfðinginn var tortrygginn, en samt sem áður var hann á báðum áttum. Hann hafði séð svo margvísleg skálkastrik loð- skinnaþjófanna ganga fram. Hann gat ekki með öllu efast. „Ég skal gefa þér líf, en þú skalt ekki verða þræll“, svaraði hann. „Meira en það“. Subienkov lék hlutverk sitt jafn kaldur og rólegur og hann væri að þrefa um loð- skinn. . 15

x

Skemmtisögur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skemmtisögur
https://timarit.is/publication/1958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.