Skemmtisögur - 15.04.1953, Blaðsíða 33

Skemmtisögur - 15.04.1953, Blaðsíða 33
Geirþrúður kennslukona Gamansamur ástarreyfari EFTIR STEPHEN LEACOCH JjAÐ var óveðursnótt á vesturströnd Skot- lands. Þetta skiptir þó ekki máli í þess- ari sögu, þar eð hún gerðist ekki á vestur- strönd Skotlands. Auk þess var veðrið alveg cins bölvað á austurströnd Írlands. En þessi saga gerist á Suður-Englandi í og umhverfis Mossatosskastala, óðalsetur Noss lávarðar. Nossatoss var háenskt heimili. Aðalbygg- ingin var úr dökkrauðum múrsteini, en eldr,i hlutinn, sem jarlinn var afburða stolt- ur afj sýndf enn þá normannastíl. Frá kast- alanum í allar áttir breiddi sig fagurt skóg- lendi og garður með eikur og álmtré, sem enginn vissi framar aldur á, en nær húsinu voru runnar og blómabeð. Umhverfis gömlu höllina sungu þrestir, skógarhænsni klökuðu og krákur görguðu, en dádýr, antilópur og aðrir ferfætlingar lötruðu um grundirnar svo spakir, að þeir átu úr grautardisk. Frá húsinu niður í garðinn lágu breið og fögur trjágöng, sem Hinrik VII. hafði átt frumkvæði að. Noss lávarður stóð á arinteppinu í bóka- herberginu. Þó hann væri þaulreyndur stjórnmálamaður, var hörkulegt höfðings- andlit hans umsnúið af ofsareiði. „Drengur," sagði hann, „þú skalt kvæn- ast þessari stúlku, ellegar ég geri þig arf- lausan og viðurkenni þig ekki lengur sem son minn.“ Ungi Ronald lávarður, sem stóð keikur frammi fyrir honum, endurgalt augnaráð hans af engu minni þrjózku. „Ég hopa hvcrgi,“ sagði hann. „Héðan í frá ert þú ekki faðir minn. Ég ætla að finna aðra. Ég kvænist engri nema stúlku, sem ég elska. Þessi stúlka, sem við höfum aldrei séð —“ „Fffl,“ sagði jarlinn, „myndir þú kasta frá þér óðali voru og þúsund ára nafni? Þessi stúlka, er mér sagt, er yndisfögur; frænka hennar er þessu hlynnt; þær eru íranskar. Þeir hafa vit á slíku í Frakk- landi.“ „En ástæða þín —“ „Ég skýri ekki frá neinni ástæðu," sagði jarlinn. „Hlustaðu á, Ronald, ég veiti þér mánaðarfrest. Þann tíma dvelux þú hér. Ef þú neitar að þeirn tíma liðnum, færðu ald- rei nema einn shilling í arf.“ Ronald lávarður sagði ekkert; hann stökk út úr stofunni, stökk á bak hesti og reið sem óður maður í allar áttir. Þegar hurðin skelltist að baki Ronalds, hné jarlinn niður í stól. Svipur hans breytt- ist. Hann var ekki lengur eins og á nroka- fullum aðalsmantri, heldur ofsóttum glæpa- manni. „Hann verður að kvænast stúlk- unni,“ tautaði hann. ,,Brátt mun hún kom- ast að öllu. Tútjemoff hefur komizt und- an frá Síberíu. Hann veit þetta og segir frá því. Allar námurnar falla í hennar hlut, þessi eign líka, og ég — en nóg um það.“ Hann stóð upp, gekk að skenkiborðinu. fékk sér fullt glas af brennivíni og bitter og SKEMMTISOGUK 31

x

Skemmtisögur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skemmtisögur
https://timarit.is/publication/1958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.