Árbók Ísafoldar - 01.11.1948, Blaðsíða 203
Ríkisútvarpið.
Ríkisútvarpið var stofnað með
lögum frá Alþingi árið 1930 og hóf
fyrst útsendingar 20. desember það
ár. i fyrstu starfaði það í leigðu
húsnæði hjá Verzl. Edinborg í Hafn-
arstræti, en haustið 1931 flutti það
i Landssímahúsið við Austurvöll, og
er þar enn til húsa. Hafði .4 hæð
þess húss verið að nokkru gerð með
sérstakar þarfir útvarpsins fyrir
augum, en þó raunar allt sniðið við
minnstu hugsanlegar þarfir. Síðar
fékkst nokkuð til rýmkað er Tón-
listardeild og skrifstofu útvarpsráðs
var komið fyrir á 5. hæð i sama
húsi. Enn síðar var viðgerðarstofan
flutt í stórt leiguhúsnæði á Ægis-
götu 7. Viðtækjaverzlunin og út-
sölur hennar hafa frá upphafi starf-
að í leigðu húsnæði í bænum.
Loks hefur Fréttastofan og æf-
ingasalir verið flutt í húsnæði á
horni Klapparstígs og Hverfisgötu.
Eru starfsdeildir Ríkisútvarpsins og
Viðtækjaverzlunarinnar nú dreifðar
á átta stöðum í bænum.
Á undanförnum árum hefur verið
unnið að undirbúningi nýrrar út-
varpsbyggingar, sem á að rísa á
lóð sunnan Hringbrautar og vestan
Melavegar. Verður hafizt handa um
framkvæmdir þegar er heimild
ráðuneytis og gjaldeyrisyfirvalda er
fengin.
Langbylgjustöðin var reist árið
1930 og stendur hún á Vatnsenda-
hæðinni, 9 km. frá Reykjavík. f
fyrstu hafði stöðin 16 kw. orku, en
árið 1937_ var orkan aukin upp í
100 kw. Útvarpað er á bylgjulengd
1107 metrar. Árið 1937 var reist
endurvarpsstöð á Eiðum, vegna
þess hve hlustendur á Austurlandi
heyrðu illa til stöðvarinnar í
Reykjavík. Orka endurvarpsstöðvar-
innar er 1 kw og bylgjul. 488 m.
Gera má ráð fyrir, að öldulengdir
útvarpsstöðvanna breytist á næst-
unni. Þá er og gert ráð fyrir að ný
endurvarpsstöð verði reist á Akur-
eyri eða þar í nánd.
Stuttbylgjustöðin, TFJ, er eign
Landssímans, en Ríkisútvarpið tek-
ur hana stundum á leigu til þess að
útvarpa til útlanda. Reglulegt út-
varp til íslendinga erlendis fer fram
á hverjum sunnudegi frá kl. 16.15
til 16.45 GMT. Orka stöðvarinnar
er 7 kw. og bylgjulengd 24.64 metrar.
Ríkisútvarpið ber undir Mennta-
málaráðuneytið. Ráðherra skipar
útvarpsstjóra, sem annast alla dag-
lega stjórn og fjárreiður útvarps-
ins, eftir nánari fyrirmælum_ í
reglugerð, er ráðherra setur. Út-
varpsstjóri er Jónas Þorbergsson,
og hefur hann gegnt því starfi frá
upphafi, en Sigurður Þórðarson,
tónskáld, veitir aðalskrifstofunni
forstöðu.
Útvarpsráð skipa fimm menn. Eru
þeir kosnir hlutfallskosningu á Al-
þingi, á fyrsta þingi eftir hverjar
almennar alþingiskosningar. —
Menntamálaráðherra skipar for-
mann úr flokki hínna kosnu út-
varpsráðsmanna, og er núverandi
formaður útvarpsráðs Jakob Bene-
diktsson magister.
Útvarpsráð tekur ákvarðanir um
það, hversu dagskrá skuli haga 1
höfuðefnum, og leggur fullnaðar-
samþykki á dagskrá áður en hún
kemur til framkvæmda. Það leggur
og samþykki sitt á reglur um flutn-
ing frétta og auglýsinga útvarpsins,
og aðrar þær reglur, er þurfa þykir
til gæzlu þess, að við útvarpið ríki
skoðanafrelsi og fyllsta óhlutdrægni
gagnvart einstökum stjórnmála-
stefnum, stjórnmálaflokkum, stefn-
um í almennum málum, félags-