Goðasteinn - 01.09.1995, Síða 185
ANNALAR
Goðasteinn 1995
Sveitarfélög
urinn lofar góðu, og er nýgræðslan þegar j
farin að breyta svipmóti staðarins.
Haldið var áfram að vinna að úrbótum
á sorphirðu og settir upp gámar fyrir gróf-
sorp og brotajárn á Rauðalæk í samvinnu
við Ásahrepp.
Við Hrauneyjar var byggð á vegum
einkaaðila þjónustumiðstöð fyrir ferða- j
menn sem tók til starfa í árslok. Reist var
hús við Landmannahelli á vegum Veiði-
félags Landmannaafréttar til afnota fyrir
gæslufólk. Eitt íbúðarhús var byggt á árinu
auk þess sem byggt var við tvö cnnur,
byggð 5 sumarhús og hafin vinna við
innréttingu í aðstöðu sem bifreiðaverk-
stæði Kaupfélags Rangæinga á Rauðalæk
flytur starfsemi sína í. Þá var byggð ein j
áburðargeymsla á árinu.
Lokið var endurbyggingu Hagakirkju j
en hún er rúmlega 100 ára gamalt hús,
vígð árið 1891. Endurvígsla kirkjunnar fór
fram 6. nóvember. Biskupinn yfir Islandi,
herra Olafur Skúlason vígði húsið. Próf-
astur og prestar Rangárvallaprófastsdæmis j
voru allir viðstaddir, og sóknarbörn og
sveitungar fjölmenntu við athöfnina.
Vegna aldurs heyrir kirkjan undir hús- |
friðunarlög, og fór endurbyggingin fram í
samráði við húsafriðunarnefnd. Hönnun
verksins var miðuð við það að kirkjan
héldi sem best upprunalegu útliti sínu og
gerð. Sóknarbörn lögðu fram mjög mikla
sjálfboðavinnu við verkið, en kirkjusmiður
var Helgi Guðmundsson, húsasmíðameist-
ari á Selfossi. Mjög vel þykir hafa tekist til J
með þetta verk og er nú í framhaldi af
endurbyggingu kirkjuhússins unnið að
lagfæringu á girðingu umhverfis grafreit j
og aðkomu að staðnum.
Við sveitarstjórnarkosningar í maí voru
eftirtaldir kjörnir í hreppsnefnd:
Hermann Sigurjónsson, Raftholti (odd-
viti).
Engilbert Olgeirsson, Laugalandi.
Valmundur Gíslason, Flagbjarnarholti
(varaoddviti).
Sigríður Jónasdóttir, Rauðalæk.
Margrét Eggertsdóttir, Köldukinn.
Pálmi Sigfússon, Læk.
Kristinn Guðnason, Skarði.
Nýráðinn sveitarstjóri, Valtýr Valtýs-
son, markaðsfræðingur frá Meiri-Tungu,
tók til starfa 1. september með ráðningar-
tíma út kjörtímabil hreppsnefndar.
Um félagslíf er það helst að segja að
hin ýmsu sérfélög s.s. ungmennafélög,
kvenfélög og búnaðarfélög starfa með
sama sniði og fyrir sameiningu hreppanna.
Nýlega stofnað íþróttafélag, „Garpur“ sem
einnig nær yfir Ásahrepp, starfaði vel á
árinu og fólk úr félaginu náði góðum
árangri bæði í einstaklingsgreinum og
körfubolta.
Þátttaka í starfi Tónlistarskóla Rangæ-
inga var mikil og hópur áhugafólks naut
tilsagnar Sigurveigar Hjaltested í söng yfir
vetrartímann. Hópurinn lauk vetrarstarfinu
með kvöldvöku í félagsheimilinu Brúar-
lundi, þar sem allir þátttakendur fluttu ein-
söngslög, auk tvísöngs og kórsöngs.
Kvöldvakan þótti takast mjög vel og ber að
fagna þessu framtaki.
Á Laugalandi var starfrækt sumarhótel
á tímabilinu júní - ágúst og var aðsókn
góð. Allt virðist benda til að eftirspurn
eftir þeirri þjónustu muni fara vaxandi.
I vegamálum gerðist það helst á árinu
að í sýsluvegum, sem nú nefnast safnvegir
var aðallega unnið við lagfæringar á Litlu-
Tunguvegi og Laugavegi. Þá var á Land-
vegi byggður upp kaflinn frá Hallstúni upp
yfir Holtsmúlasund. Menn hér í sveit hafa
af því áhyggjur hvað viðhaldi veganna er
ábótavant og uppbygging þeirra gengur
hægt og sýnist í óefni stefna ef ekki fæst
þar úr bætt á næstunni.
-183-