Goðasteinn - 01.09.1995, Blaðsíða 234

Goðasteinn - 01.09.1995, Blaðsíða 234
ANNÁLAR Goðasteinn 1995 Ýmis félög Það hefur sennilega verið veturinn 1962-1963 sem Áslaugu á móti þótti rétt að koma mótbýliskonu sinni í saumaklúbb enda hafði Áslaug margra ára góða reynslu af þess háttar félagsskap. Ekki veitti mér af einu ári og hálfu betur til að hugsa mig um. Þama var verið að boða mér stefnubreytingu á þeirri einu stefnu sem ég hafði fasta. Hvað skal gera? Ekki gat ég breytt um stefnu sem var svo ákveðin og bein og svo ef til vill síðar halda áfram föst fyrir, bara rétt si sona. Svo kom ráðið, ég beygði bara stefnuna aðeins og viti menn, það var pláss fyrir saumaklúbb. Þessi beygja hefur haldið vel og ekkert brot í hana komið í rúm þrjátíu ár. Eg held það sé nokkuð seigt í henni, þoli alla vega næstu þrjátíu árin. Eg fór í fyrsta klúbbinn, annan og þann þriðja. Svo kom fyrsta árið, annað og það þriðja. Það voru ómældar kökur á borðum, frá smurbrauði, flatkökum og smákökum upp í stærðar Hnallþórur og allt þar á milli, bornar fram á höfðinglegan máta. Vinnusemi var mikil til munns og handa. Ekki var lagt upp með minna en að prjóna sokka eða vettlingapar á kvöldi eða bol á peysu. Þurfti þá stundum að vinda upp hespur, ekki mátti stoppa. Handbragð var með eindæmum gott. Skal þar sérstak- lega getið um prjónaskap á vettlingum með kaðlamynstri sem fáir geta leikið eftir, ef nokkur. Kaffi var drukkið tvisvar með meðlæti, ekki veitti af, því hitaeiningum var brennt við stífa vinnu. Mæting var óregluleg eða klukkan níu til tíu að kvöldi og jafnvel stundum síðar. En úthaldið var gott, verið að til klukkan fjögur eða fimm að morgni. Þetta voru heimavinnandi húsmæður sem sluppu út frá karli sínum og krökkum. Stundum fékk þó heimafólk að taka þátt í gleðskap með þessum föngulegu konum utan þess að fá að vera með, þegar klúbb- urinn var á viðkomandi heimili. Fyrst skal geta um fjölskylduferð í Hraunteig. Gleði var í hópnum, ekki síst hjá börnunum. Tvisvar, held ég, að við höfum farið með bömin í Þjóðleikhúsið. Með mökum okkar höfum við gert ýmsar glettur. Leikhúsferðir, þar sem borðað var fyrst og dansað á eftir, var nokkuð fastur árlegur atburður um tíma. ! Heimboð vom í sumarbústaðina til Áslau- | gar og Guðrúnar og kvöldstund í trjáræk- tinni í Ölveri. Afmælin hennar Lilju eru ógleymanleg, hvort sem var í Inghóli eða Breiðvangi (hvert eigum við að fara næst?). Oft hefur verið hávaði í klúbbunum og : ekki hefur okkur verið orða vant, enda hressar konur. Umræðuefnið hefur verið frá hörku pólitík, þar sem nefndakonan Unnur er annars vegar og niður í hin smæstu mál þar sem okkur er allt viðkom- andi. Ekki höfum við leitt öll mál til lykta og ekki farið allar þær ferðir sem um var talað. Afmælisárið er liðið og ekki fórum við saman að sjá og heyra Kristján Jó- hannsson síðastliðið haust. Getur verið að Grænland taki á móti saumaklúbbnum mínum í sumar í tilefni af þessum tímamó- tum? Við höldum upp á afmælið, hvenær sem það verður. Margt hefur breyst á þessum rúmu þrjátíu árum og margur dropinn til sjávar runnið. Litli drengurinn minn sem fæddist í janúar það ár sem tímatal hófst er orðin 31 árs, hans sonur fæddist árið 29 eftir Þórnýju og Sjöfn. Það er merkilegt hvað allt og allir eldast nema við! Breytingar hafa þó orðið á formi klúbb- sins. Niðurskurður mikill í kökuúrvali. Þar hefur verið þrengt að smátt og smátt. Ætla má að um miðjan líftíma klúbbsins hafi niðurskurður miðast við þann kvóta, að ekki væru fleiri en sex sortir á borðum. Ef hliðarskál sást með ídýfu eða þess háttar umfram sex, var viðvörun gefin. Ekki voru mörg ár sem kostur gafst á sex köku úrvali. Hnífnum var beitt og -232-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210
Blaðsíða 211
Blaðsíða 212
Blaðsíða 213
Blaðsíða 214
Blaðsíða 215
Blaðsíða 216
Blaðsíða 217
Blaðsíða 218
Blaðsíða 219
Blaðsíða 220
Blaðsíða 221
Blaðsíða 222
Blaðsíða 223
Blaðsíða 224
Blaðsíða 225
Blaðsíða 226
Blaðsíða 227
Blaðsíða 228
Blaðsíða 229
Blaðsíða 230
Blaðsíða 231
Blaðsíða 232
Blaðsíða 233
Blaðsíða 234
Blaðsíða 235
Blaðsíða 236
Blaðsíða 237
Blaðsíða 238
Blaðsíða 239
Blaðsíða 240
Blaðsíða 241
Blaðsíða 242
Blaðsíða 243
Blaðsíða 244
Blaðsíða 245
Blaðsíða 246
Blaðsíða 247
Blaðsíða 248
Blaðsíða 249
Blaðsíða 250
Blaðsíða 251
Blaðsíða 252
Blaðsíða 253
Blaðsíða 254
Blaðsíða 255
Blaðsíða 256
Blaðsíða 257
Blaðsíða 258
Blaðsíða 259
Blaðsíða 260
Blaðsíða 261
Blaðsíða 262
Blaðsíða 263
Blaðsíða 264
Blaðsíða 265
Blaðsíða 266
Blaðsíða 267
Blaðsíða 268

x

Goðasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1974

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.