Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2006, Blaðsíða 74
72
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2006
Samdráttur á Vesturlandi
Verulegur samdráttur hefur ver-
ið í lönduðum afla á Vesturlandi.
Nokkrir þættir ráða þar mestu,
breytt eignaraðild að stærsta sjáv-
arútvegsfyrirtækinu, hrun hörpu-
diskstofnsins í Breiðafirði, breytt
göngumynstur loðnu og/eða of-
veiði á henni svo nokkrir stórir
liðir séu nefndir. Einnig er fyrir-
sjáanlegur samdráttur í rækju-
vinnslu á þessu ári. Fiskafli sem
landað er á Vesturlandi er að stór-
um hluta unninn annarstaðar, þ.e.
fiskurinn er fluttur í aðra lands-
hluta til vinnslu. Hér eru dæmi
um 4 aðal botnfisktegundirnar:
Þorskur; 30% unnin í vinnslu á
Vesturlandi 70% flutt burt, ýsan;
þar er aðeins 24,2% unnin á Vest-
urlandi, ufsi; 33,7% unnin hér en
karfinn hefur sérstöðu þar sem
tæp 70% eru unnin á Vesturlandi.
Stærstur hluti hans er fluttur á
höfuðborgarsvæðið og Suðurnes.
Skýring sú sem gefin er fyrir þess-
um miklu fiskflutningum, að ná-
lægðin við Keflavíkurflugvöll gefi
þetta samkeppnisforskot, er röng
að mínu áliti.
Hræðsluáróður
alþingismanna
Allmargir þættir valda því að
fiskurinn er fluttur burtu af svæð-
inu. Eg set þá upp í tímaröð:
Verulegur samdráttur í leyfilegum
þorskafla, útgerð og fiskvinnsla
við Breiðafjörð var að stórum
hluta byggð upp á þorskveiðum
og saltfiskvinnslu.
Tveimur stærstu frystihúsunum
var breytt í rækjuvinnslur og bol-
fiskvinnslan og kvótinn fluttur
norður í land þó svo að rækjan
veiðist fyrir norðan land. Þar réði
einhvers konar byggðastefna
Byggðastofnunar í pólitík. Sam-
eining fyrirtækja á Akranesi.
Fólksfækkun í byggðalögunum á
Snæfellsnesi. Grunninnviðir s.s
framhaldsskóli var ekki á Snæfells-
snesi,
Hræðsluáróður ákveðinna al-
þingismanna. Fagmenntað fisk-
vinnslufólk ekki til. Fiskvinnslu-
skólinn ekki starfræktur, skortur á
starfsfólki, skortur á húsnæði, tak-
mörkun á innflutningi vinnuafls
og harðari reglur um innflutning
vinnuafls hér en á höfuðborgar-
svæðinu og á stóriðjusvæðum.
Skortur á frumkvöðlum. Unga
fólkið kemur ekki til baka að
námi Ioknu.
Fólki fjölgar
Fiskvinnslur á Vesturlandi sem
hafa leyfi frá Fiskistofu til fryst-
ingar, ferskfisk- og eða saltfisk-
vinnslu eru: Akranes 2, Stykkis-
hólmur 3, Grundafjörður 7,
Ólafsvík 2 og Rif/Hellissandur 3 .
Á landinu öllu eru á þriðja hund-
rað sambærileg leyfi í gangi. Við
lauslega skoðun mína þá virðist
það eignarform, sem mestan stöð-
ugleika sýnir á svæðinu vera
einkaeign. Sameignar og opin
hlutafélagseignaform hafa frekar
horfið af sjónarsviðinu. Fisk-
vinnslan á Vesturlandi hefur ekki
nýtt sér það hráefni sem næst
henni er. Eg hef reynt að útskýra
orsakir í fortíð. En hvað með
framtíðina. Fjölmargir þættir í
innviðum samfélgsins hafa batn-
að.Vegakerfið hefur tekið stórstíg-
um framförum allra síðustu ár.
Fólki fjölgar aftur í byggðalögun-
um. Framhaldsskólakerfi er í upp-
byggingu á Vesturlandi. Banka-
kerfið er komið inn í nútímann.
Vesturland norðan stóriðju
Vesturland norðan stóriðju get-
ur og á að gera út á sína sérstöðu.
Utgerðin hefur verið að þróast
mjög mikið á allra síðustu árum,
stóraukinn línuútgerð, sérhæfing
dragnótabáta og minni, spar-
neytnari togskip. Þessi þróun hef-
ur orðið til þess að afli berst jafnar
að landi og er miklu betri að gæð-
um en áður var. Stórir vertíðar-
toppar eru ekki lengur til staðar.
Fiskvinnslan hefur einnig þróast,
framleiðslan er í auknu mæli eftir
kröfu markaðarins, þó nokkur
framför hefur verið í fiskvinnslu-
búnaði, og miklar væntingar eru
um tæknibúnað sem mun leysa
mannshöndina af hólmi í erfið-
ustu störfunum. Sérstaða svæðis-
ins er nokkur, sérstaklega á norð-
anverðu Vesturlandi. Á ég þá við
Snæfsllsnes og Breiðafjörð. Þjóð-
garðurinn á Snæfellssnesi og inn-
anverður Breiðafjörður, sem er
verndaður með sérstökum lögum,
geta ef rétt er á málum haldið nýst
sjávarútvegnum til sóknar á er-
lendum mörkuðum.
Lokaorð
Vaxandi krafa um sjálfbærni
auðlindanna og vendun sérstakrar
náttúru er til staðar við Snæfells-
nes og Breiðafjörð. Utgerðarmenn
og sjómenn hafa í áratugi lagt
sjálfviljugir á sig bann við flestum
veiðum á Breiðafirði og voru
frumkvöðlar í verndun hrygning-
arstöðva þorsksins fyrir nærri 40
árum.
Erlendir kaupendur, þá sérstak-
lega stóru verslunarkeðjurnar,
leggja orðið verulega upp úr að
sýnast ábyrg í innkaupum.
Sjómcnn!
Tif framincjju mcð datjinu
Félag skipstjórnarmanna