Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Síða 14

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Síða 14
12 Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008 Guðmundur Kristjónsson, Magnús heitinn Guðmundsson og Guðmundur Sveinsson á góðri stund. Einhver kippti í Þetta viðtal við Guð- mund er búið að vera bráðskemmtilegt. Hann segir vel frá og hægt væri að hafa það miklu lengra. Hann búinn að reyna margt í lífinu, sem gæti verið mörgum lærdóms- ríkt. Hann kemur hreint fram og segir óhræddur sínar skoðanir á málum og er alveg ófeiminn og engin lognmolla í kring- um hann. Hann talar vel til þeirra manna sem hafa reynst honum vel á lífs- leiðinni og hann er vinur vina sinna. Guðmundur er maður athafna og ekki gefinn fyrir neitt slór og hefur alltaf verið og allir þekleja hann þannig. Guð- mundur er svo sannarlega einn af þeim, sem settu svip og mark á bæjarlífið í Olafsvík á sínum skip- stjóraárum og flesdr ef ekki allir sem stunduðu sjó þekktu Gvend á Stapafellinu og Gvend á Lárusi. Eg spurði hann ekki um sjóslysið þegar Bervíkin fórst 1985 en þar missti hann m.a. bróður sinn og mág, en það var mikill missir af þeim góðu mönnum sem þar voru um borð. Guðmundur sagði frá því þegar hann tók um borð mennina af Skarðsvíkinni sem sökk við leitina að togaranum El- liða í febrúar 1962, en þá var hann með Stapafellið. Þá voru þeir á heimleið eftir leitina og hann hafði lagt sig smástund á bekkinn. Einhver kippti þá í hann og hann rauk upp stillti á neyðar- bylgjuna, 2182 og þá er sagt frá því að Skarðsvíkin hafi sokkið og allir menn komist í björgunarbát- inn. Sem betur fór voru þeir nærri og feginn var hann er skipshöfnin á Skarðsvíkinni komst um borð í Stapafellið úr gúmmíbátnum, en Sigurður bróðir hans var skipstjóri á Skarðsvíkinni. Fjölskyldan Eiginkona Guðmundar er Krist- fíður Kristjánsdóttir frá Hell- issandi. Hún er dóttir hjónanna Kristjáns Hafliðasonar og Guð- mundsínu Sigurgeirsdóttur. Guð- mundur og Fríða eins og hún er alltaf kölluð eiga fimm börn og elstur er Arnar. Þá koma Guðrún Kolbrún, Kristjón, Guðmundur og svo er Stefán Ingvar, sem er yngstur. Barnabörnin eru orðin 14 og 6 barnabarnabörn og þrjú eru á leiðinni. Guðmundur og Fríða giftu sig 1965 og við sama tækifæri gifti sig Kristinn Her- mannsson, en hann var hálfbróðir Fríðu og presturinn var enn sr Magnús Guðmundsson, en hann fermdi Guðmund eins og áður sagði. Guðmundur og Fríða byrjuðu sinn búskap í austurendanum á Borg- inni í Ólafsvík og í íbúð- inni bjuggu líka Færey- ingar, bæði sem unnu í landi og voru með Guð- mundi á bátnum. Árið 1958 byggja þau Brautar- holt 14 í Ólafsvík, sem var tveggja hæða hús og var flokkur manna úr Reykjavík fenginn til verksins. Guðmundur og Kristfríður fluttu til Hafnarfjarðar en þá var hún farin að kenna sjúk- leika sem hún býr enn að, en erfitt var fyrir Guð- mund að stunda sjó- mennsku sökum þessa seinni árin. Hann býr nú í Hafnarfirði og er eld- hress, bara eins og hann var áður, en Kristfríður kona hans dvelur á Hrafnistu sökum veikinda sinna. Guðmundur á sumarbústað inni í Bug, á sínum æskustöðvum og dvelur hann þar oft. Ég vil að lok- um þakka Guðmundi fyrir mjög ánægjulegt og fróðlegt viðtal. Þá vil ég þaklta honum skemmtilega samveru á sjónum en ég var skip- verji á Lárusi Sveinssyni 1968 með frábærri áhöfn. PSJ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.