Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Síða 19

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Síða 19
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008 17 hráinn Sigtryggsson, minning Þráinn var fæddur á Mosfelli hér í Ólafsvík þann 1. september 1928 og hefði því orðið 80 ára í haust en hann lést 7. mars sl. For- eldrar hans voru þau Guðbjörg Vigfúsdóttir og Sigtryggur Sig- tryggsson sjómaður. Þráinn er þriðji í röð sjö systkina. Hann var aðeins fjórtán ára þegar hann réð sig á bát með Guðmundi Jenssyni sem kokkur uppá hálfan hlut. A þessum árum var það altítt að ungir menn frá Ólafsvík færu suð- ur á vertíð og það gerði Þráinn líka. Hann byrjaði fyrst á Fiska- kletti með Eiríki Hávarðarsyni og hann var einnig á vertíð með Guðjóni Illugasyni á Illuga frá Hafnarfirði og voru þeir m.a. á Hvalfjarðarsíldinni en Illugi var 80 lesta bátur. Þegar Þráinn kom heim haustið 1949 var haldið vélanámskeið í Ólafsvík á vegum Fiskifélags ís- lands og eftir það réð hann sig til Guðna Sumarliðasonar sem vél- stjóra á Hafölduna. Þá á eftir fór hann til þeirra Guðmundar Jens- sonar og Hauks bróður síns á bát- inn Egil SH. Eftir það hófst sam- eiginlegur útgerðarferill þeirra bræðra með stofnun Dvergs hf ásamt Guðmundi. Þeir voru alveg einhuga um það allir bræðurnir á Mosfelli að taka þátt í þeirri upp- byggingu sem var að hefjast hér í Ólafsvík á þ essum árum. Hrönnin SH 149, 42 lesta bát- ur, var smíðaður á Akureyri árið 1956. Kveikjan að því var sú að lokað var fyrir dragnótina allt í kringum landið. Þá var Hrönnin fyrsti og stærsti bátur sem smíðað- ur hafði verið fyrir Ólsara í langan tíma og mjög vel útbúinn á allan hátt. Reyndar var þá búið að bjóða þeim stærri bát sem var í smíðum á Akureyri en eldd varð af því, þar sem hafnarskilyrðin í Ólafsvík buðu ekki uppá það. Guðmundur var skipstjóri á Hrönninni og Þráinn vélstjóri. Þá voru netin byrjuð hér í Ólafsvík og ætlunin að vera á netum og línu og fara síðan á síldveiðar á sumrin. Félagið lét svo smíða Sveinbjörn Jakobsson SH 10 í Danmörku árið 1964 en það var 105 lesta tré- skip. A þeim bát verður Þráinn skipstjóri árið 1972 og er hann með bátinn samfellt til ársins 2002 eða í um 30 ár og var Svein- björn ávallt mikið happaskip. Dvergur hf skiptist upp í tvo hluta árið 2001. Þá kaupa Þráinn og synir hans, Egill og Sigtryggur, Sveinbjörn Jakobsson SH 10 og heitir þeirra félag eftir það Ut- gerðarfélagið Dvergur ehf Þráinn var mjög góður og lán- samur skipstjóri alla tíð. Hugsaði vel um sína báta, fór vel með alla hluti og vildi hafa allt í lagi því ör- yggið var fyrir öllu. Þeir sem voru með honum á sjó voru í góðu skipsrúmi. Þráinn er búin að upplifa tímana tvenna eins og nærri má geta við sjósókn frá Ólafsvík og skilað miklu til bæjar- ins á sinni sjómennskutíð. Hann hafði mikin metnað til þess að Ólafsvík myndi vaxa og dafna. Þráinn var hafsjór af fróðleik og sagði vel frá og talaði gott og kjarnyrt mál. Hann var vel inni í málum hvort sem það var erlendis eða hér innanlands. Eins og gefur að skilja voru þó sjávarútvegsmál- in honum efst í huga og hann hafði einarðar skoðanir á þeim. Hann kom sínum skoðunum vel til skila og sagði þær umbúðalaust og hann var líka óhræddur að gagnrýna menn sem hann honum fannst ekki standa sig. Hann tal- aði íslensku eins og oft er sagt um menn sem eru óhræddir að segja sína meiningu og vafalaust hefur einhverjum sviðið undan. Stund- um var hann líka að stríða mönn- um og hann brosti þá á eftir. Þrá- inn stóð oft upp á fundum og ræddi málin hispurslaust og þá gustaði oft að kalli. Hann gerði kröfur til annarra og þá ekki sfður til sjálfs síns. Hann var tryggur og umhyggjusamur og vakti mjög yfir velferð síns fólks. Þráinn var heiðraður af sjómönnum á sjó- mannadegi í Ólafsvík 1996. Þrá- inn var einn af þessum hreinrækt- uðu Ólsurum sem maður bar mikla virðingu fyrir. Hann kunni sögu Ólafsvíkur og hélt því á lofti sem honum fannst skipta máli. Ég vil að lokum fyrir hönd Sjó- mannadagsblaðs Snæfelisbæjar votta Guðbjörgu eiginkonu hans og aðstandendum innilega samúð vegna fráfalls Þráins. Pétur Steinar Jóhannsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar
https://timarit.is/publication/1990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.