Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar - 01.06.2008, Síða 25
Sjómannadagsblað Snæfellsbæjar 2008
23
Snæbjörn Árnason skrifstofumaður með konu sinni Guðbjörgu Árnadóttur. Snæbjörn var lengi
skrifstofustjóri hjá HÓ.
HÓ og Hólavellir sameinuð
Á þessum árum þ.e. 1972-1987
urðu eftirfarandi breytingar á
stjórn HO: 1974 kom Sigurður
Stefánsson í stjórn sem formaður
og Guðmundur Björnsson með-
stjórnandi í stað þeirra Guðlaugs
Þorlákssonar og Halldórs Jóns-
sonar, sem létust. 1977 kom Pét-
ur Pétursson í stjórn sem formað-
ur í stað Sigurðar Stefánssonar,
sem hætti í stjórn að eigin ósk, en
var endurskoðandi félagsins og
Jónas Guðmundsson, sem kont í
stað Sigurðar Ágústssonar, sem
lézt 1976. Eftir þetta var stjórnin
óbreytt til 1987.
Hér að framan hefur verið stikl-
að á mjög stóru hvað varðar fram-
kvæmdir HÓ og Hólavalla á ár-
unum 1972-1987 en félögin voru
sameinuð á árinu 1981 undir
nafni HÓ og Hólavöllum hf. slit-
ið
Breytingar við
kvótasetninguna
Þegar hinum alræmdu kvótalög-
um var kornið á breyttist rekstrar-
umhverfi fyrirtækja eins og HÓ,
sem að verulegu leyti byggði starf-
semi sína á afla viðskiptabáta í
eigu einstaklinga og annarra fyrir-
tækja, mjög til hins verra þar eð
það voru eingöngu útgerðirnar,
sem fengu úthlutað kvóta, en ekki
vinnslustöðvar, landverkafólk eða
sjómenn. Þetta nýttu ýmsir út-
gerðarmenn sér með því að ganga
milli vinnslustövanna og láta þær
bjóða í aflann. Afleiðingarnar
þekkja flestir en t.d. í Ólafsvík
voru ekki liðin mörg ár frá 1984
þar til öllum fjórum öflugustu
vinnslustöðvunum hafði verið
íokað. Því miður hefur þeim, sem
þetta hefur tekið saman og ritað,
ekki unnizt tími til að afla gagna
um móttekinn afla eða útfluttar
afurðir á hverjum tíma, sem þó
hefði verið æskilegt, þegar saga
þessara fyrirtækja er skrifuð.
Reksturinn seldur
Síðari hluta árs 1987 ákváðu
Pétur Pétursson og Sigurður Stef-
ánsson og fjölskyldur þeirra að
selja hluti sína í HÓ og ákvað ég
þá einnig að selja minn hlut. Seld-
um við ásamt Pétri Guðlaugssyni
okkar hluti eða alls um 51% til
Ólafs Gunnarssonar og fjölskyldu
Hjálmtýr Ágústsson verksmiðjustjóri hjá FSÓ.
og hætti ég þá sem framkvæmda-
stjóri og stjórnarmaður í HÓ og
fyrirtækjum tengdum því.
Fyrirtækjareksturinn
Hér á eftir eru stuttar lýsingar á
þeim fyrirtækjum, sem eru svo
nátengd rekstri HÓ á þessunr
tíma, að ekki verður hjá því kom-
izt að þeirra sé sérstaklega getið.
Án tilkomu þeirra hefði umfang
og rekstur HÓ orðið svipur hjá
sjón. Auk þeirra fyrirtækja og út-
gerða, sem sérstaklega verður
greint frá má nefna, að H.Ó.
stofnaði einnig Lýsisfélagið hf. í
Vestmannaeyjum ásamt Pétri
Pétussyni og fyrirtækjum í Vest-
mannaeyjum. Þá var HÓ einnig
eignaraðili að félögum þeim, sem
önnuðust sölu afurðanna svo sem
SH, SÍF og SSF að ógleymdum
Garðar II SH 164